Hafna kröfu um stöðvun framkvæmda í Patreksfirði

Deilt er um breytingu á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm sem …
Deilt er um breytingu á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm sem snýr að staðsetningu sjókvíaeldis í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í lok ágúst einni kæru og einum lið í annarri kæru eigenda Efri-Tungu II og eigenda helmings Efri-Tungu við Patreksfjörð er snúa að ákvörðunum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar um breytta staðsetningu sjókvíaeldis Arctic Sea Farm (Arctic Fish) í Patreksfirði. Enn eru til meðferðar kröfur um að fella úr gildi breytingu starfsleyfisins.

Af gögnum málsins að ráða krafðist kærandi í öðru málinu að felld verður úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar frá 14. júlí síðastliðnum um að breyta starfsleyfi Arctic Sea Farm ehf. fyrir sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði með tilliti til staðsetningu eldissvæða, hvíldartíma og heimild til notkunar ásætuvarna sem innihalda koparoxíð. Auk þess sem krafist var að úrskurðarnefndin taki nýja ákvörðun þess efnis að synja umsókn leyfishafa um breytingu á starfsleyfi.

Jafnframt krafðist kærandi að réttaráhrif ákvörðunar Umhverfisstofnunar yrði frestað.

Sambærilegar kröfur voru gerðar í hinni kærunni er snýr að ákvörðunar Matvælastofnunar frá 15. júlí 2022 um að breyta rekstrarleyfi fyrirtækisins fyrir sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði að því er varðar staðsetningu eldissvæða og hvíldartíma.

Bæjarins besta fjallaði fyrst um málið.

Langt þar til framkvæmda kemur

Í úrskurði nefndarinnar vegna kæru vegna ákvörðunar Umhverfisstofnunar er kröfu um frestun réttaráhrifa hafnað en ekki tekin afstaða til fyrsta lið kærunnar er snýr að því að ógilda ákvörðunina sem heimilar að færa eldissvæði Arctic Sea Farm í Patreksfirði.

„Samkvæmt upplýsingum frá leyfishafa verður hið umdeilda eldissvæði ekki tekið í notkun fyrr en í fyrsta lagi á árinu 2024 þegar núverandi fiskeldislotu í Patreksfirði lýkur með slátrun eldisfisks og að loknum hvíldartíma, en úrskurðar í máli þessu er að vænta fyrir þann tíma. Með þessu verður ekki séð að kæra verði þýðingarlaus fyrir kæranda þótt hafnað verði kröfu hans um frestun réttaráhrifa á meðan málið er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni eða að af því hljótist tjón fyrir hann sem erfitt verði að ráða bót á. Hins vegar er mögulegt að frestunin yrði verulega íþyngjandi fyrir leyfishafa. Að framangreindu virtu verður kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa hafnað,“ segir í úrskurðinum.

Úrskurður er snýr að ákvörðun Matvælastofnunar tekur aðeins afstöðu til kröfu kærenda um stöðvun yfirvofandi framkvæmda. Vekur nefndin athygli á, eins og í hinni kærunni, að enn er nokkuð langt þangað til að fyrirhugað sé að taka í notkun rekstrarleyfi með breyttu sniði og því er þeirri kröfu hafnað.

Krafan um að umsókn til Matvælastofnunar um breytt rekstrarleyfi verði tekin til umfjöllunar á ný og henni synjað er enn til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »