Verksmiðjur ganga fyrir olíu vegna rafmagnsskorts

Verksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað gengur að hluta til fyrir olíu …
Verksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað gengur að hluta til fyrir olíu vegna rafmagnsskorts, en verksmiðjan á Seyðisfirði að öllu leyti. Ljósmynd/Guðlaugur B. Birgisson

Landsvirkjun hefur skert afhendingu orku til verksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Gengur nú starfsemin á Seyðisfirði alfarið fyrir olíu og hluti af starfsemi fyrirtækisins í Neskaupstað.

Þetta kemur fram í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

„Enn einu sinni hefur það gerst að Landsvirkjun hefur þurft að skerða orku til verksmiðjanna og er það mjög miður. Nú er verksmiðjan á Seyðisfirði að öllu leyti keyrð á olíu og verksmiðjan í Neskaupstað ýmist á olíu eða rafmagni. Þessar skerðingar á raforku eru afskaplega hvimleiðar. Enn og aftur er það að koma í ljós að raforka í landinu er ekki nægileg í öllum tilvikum og ætti það að vera mönnum umhugsunarefni nú á tímum aukinnar umhverfisvitundar,“ segir Hafþór Eiríkssona, rekstrarstjóri verksmiðjanna, í færslunni.

Í desember 2021 þurfti Landsvirkjun að grípa til skerðinga á afhendingu rafmagns til stórnotenda. Þetta hafði í för með sér stóraukna notkun á olíu, alls 20 milljónir lítra af olíu, til að halda fiskimjölverksmiðjum gangandi.

10.000 tonn af kolmunna

Skip Síldarvinnslunnar hafa að undanförnu verið á kolmunnaveiðum á miðunum við Færeyjar og hefur afla verið landað jafnt og þétt að undanförnu.

„ Kolmunninn sem berst til okkar er mjög gott hráefni. Fiskurinn er í góðu standi á þessum árstíma, til dæmis er fituinnihaldið gott. Fyrir verksmiðjurnar skiptir öllu máli að fá hráefnið ferskt að landi og skipin kæla aflann vel um borð þannig að ferksleikinn er tryggður. Ef aflinn er ekki ferskur gengur vinnslan ekki vel, svo einfalt er það,“ segir Hafþór.

Útskipun á fiskimjöli í Neskaupstað.
Útskipun á fiskimjöli í Neskaupstað. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Ágúst Blöndal

Hann útskýrir að kolmunninn sé magrasta hráefnið sem skipin landa hjá fyrirtækinu. „Lýsisframleiðslan er ekki mikil úr honum þó hún sé mest einmitt um þetta leyti árs. Kolmunnamjölið er hins vegar ávallt gæðamjöl. Í dag og á morgun eru að berast um 10.000 tonn af kolmunna til verksmiðjanna beggja þannig að það er mikið að gera.“

Hafþór bendir á að verksmiðjan í Neskaupstað hafi einnig tekið til vinnslu loðnu frá grænlenska skipinu Polar Ammassak. „Grænlenska skipið hefur komið með tvo farma að undanförnu og er farið út núna til að freista þess að fá afla í litlum veðurglugga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.105 kg
Karfi 23 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.131 kg
19.4.24 Guðrún GK 96 Grálúðunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
18.4.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri
Ufsi 1.163 kg
Þorskur 189 kg
Karfi 6 kg
Samtals 1.358 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.105 kg
Karfi 23 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.131 kg
19.4.24 Guðrún GK 96 Grálúðunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
18.4.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri
Ufsi 1.163 kg
Þorskur 189 kg
Karfi 6 kg
Samtals 1.358 kg

Skoða allar landanir »