Ekið fram af bryggjum 25 sinnum á 20 árum

Samgöngustofa segir æskilegt að takmarka mjög aðgengi gangandi og akandi …
Samgöngustofa segir æskilegt að takmarka mjög aðgengi gangandi og akandi vegfarenda að bryggjum þar sem mikil umsvif séu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkur tilvik hafa komið upp undanfarin ár þar sem ökutæki hafa endað í höfnum landsins. Samgöngustofa telur æskilegt að takmarka til muna aðgengi gangandi og akandi að hafnarsvæðum þar sem mikil starfsemi fer fram.

Alls hafa orðið 25 slys sem skráð eru undir flokkinn „ekið fram af bryggju“ á tímabilinu 1. október 2003 til 30. september 2023, upplýsir Samgöngustofa. Þar af eru fimm banaslys, eitt slys með alvarlegum meiðslum, þrjú slys með litlum meiðslum og 16 óhöpp án meiðsla.

Meirihluti banaslysa á síðustu átta árum

Meirihluti banaslysa, þar sem ökutæki hefur farið fram af bryggju á síðustu 20 árum, hefur átt sér stað á síðustu átta árum.

Í apríl í fyrra lést maður er bíll hans fór fram af Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjum. Í nóvember 2017 lést þriggja manna fjölskylda eftir að bifreið þeirra fór fram af bryggjunni á Árskógssandi í Eyjafirði, en árið þar á undan lést karlmaður eftir að bíll hans fór fram af bryggju í Stykkishólmi.

Þá hafa orðið fleiri alvarleg atvik þar sem fólk hefur komist lífs af og má í því samhengi nefna alvarlegt atvik í Hafnarfirði í janúar 2020 þegar bifreið með þrjá unga drengi lenti í höfn bæjarins.

Allar bryggjur uppfylli kröfur

Samgöngustofa fullyrðir í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að allar bryggjur landsins hafi verið teknar út með tilliti til öryggisþátta og þær uppfylli gildandi kröfur.

Þó segir stofnunin ekki liggja fyrir heildarlisti yfir bryggjur landsins og hvenær þær voru síðast teknar út.

Þá segir í svarinu að eldri bryggjur hafi verið uppfærðar til að uppfylla kröfur um öryggi og slysavarnir, en stofnunin viðurkennir þó að dæmi séu „um eldri bryggjur sem enn hafa ekki verið uppfærðar að fullu leyti til samræmis við gildandi reglugerð“.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag, laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »