First Water leigir húsnæði Ísfélagsins

Allur lax First Water verður unninn í húsnæði Ísfélagsins og …
Allur lax First Water verður unninn í húsnæði Ísfélagsins og stendur til að starfsemin verði í húsnæðinu í allt að þrjú ár. Ljósmynd/Aðsend

Landeldisfyrirtækið First Water og Ísfélag hf. hafa gert með sér samning þess efnis að First Water leigi húsnæði og aðstöðu hjá Ísfélagi hf. í Þorlákshöfn, en engin vinnsla hefur verið í húsnæðinu síðan í lok september á þessu ári.

Í tilkynningu kemur fram að First Water hafi nú þegar fest kaup á vinnslubúnaði. Gert er ráð fyrir að vinnsla fyrirtækisins fari af stað þar á fyrri hluta næsta árs.

Allur lax First Water verður unninn í húsnæði Ísfélagsins og stendur til að starfsemin verði í húsnæðinu í allt að þrjú ár, en vinnslustöð First Water sem mun rísa á Laxabraut í Þorlákshöfn, verður tekin í notkun haustið 2026.

Í tilkynningu kemur fram að First Water hafi nú þegar …
Í tilkynningu kemur fram að First Water hafi nú þegar fest kaup á vinnslubúnaði en gert er ráð fyrir að vinnsla fyrirtækisins fari af stað þar á fyrri hluta næsta árs. Ljósmynd/Aðsend

„Við gleðjumst yfir því að samningar náðust og erum spennt fyrir samstarfinu við Ísfélagið. Eins sjáum við mikinn hag í því að flytja þessa starfsemi til Þorlákshafnar enda erum við fyrirtæki sem er staðsett í Ölfusi og kjósum eðlilega að hafa alla vinnslu okkar þar. Húsnæði Ísfélagsins og öll aðstaðan á svæðinu er til fyrirmyndar og hentar vinnslunni mjög vel. Þar af leiðandi er okkur ekkert að vanbúnaði að bretta upp ermar og hefjast handa,“ er haft eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra First Water.

Rúmur mánuður er síðan þúsundasta laxatonninu var slátrað á þessu ári hjá First Water en til stendur að árlega framleiði fyrirtækið um 50 þúsund tonn af heilum og slægðum laxi.

„Það er ekkert nema jákvætt að starfsemi fari aftur á fullt í húsnæðinu okkar. Við hjá Ísfélaginu erum ánægð með að geta lagt hönd á plóg þegar kemur að þessu flotta verkefni og hlökkum til samstarfsins við First Water,“ er haft eftir Stefáni Friðrikssyni, forstjóra Ísfélags hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.11.24 530,81 kr/kg
Þorskur, slægður 22.11.24 560,82 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.11.24 345,49 kr/kg
Ýsa, slægð 22.11.24 257,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.11.24 199,50 kr/kg
Ufsi, slægður 22.11.24 282,11 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.11.24 232,84 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.11.24 127,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.11.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 1.225 kg
Samtals 1.225 kg
22.11.24 Lilja SH 16 Lína
Ýsa 1.651 kg
Þorskur 789 kg
Langa 156 kg
Steinbítur 56 kg
Keila 33 kg
Sandkoli 5 kg
Samtals 2.690 kg
22.11.24 Kvika SH 23 Lína
Ýsa 2.575 kg
Þorskur 153 kg
Steinbítur 58 kg
Langa 47 kg
Keila 10 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 2.845 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.11.24 530,81 kr/kg
Þorskur, slægður 22.11.24 560,82 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.11.24 345,49 kr/kg
Ýsa, slægð 22.11.24 257,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.11.24 199,50 kr/kg
Ufsi, slægður 22.11.24 282,11 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.11.24 232,84 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.11.24 127,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.11.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 1.225 kg
Samtals 1.225 kg
22.11.24 Lilja SH 16 Lína
Ýsa 1.651 kg
Þorskur 789 kg
Langa 156 kg
Steinbítur 56 kg
Keila 33 kg
Sandkoli 5 kg
Samtals 2.690 kg
22.11.24 Kvika SH 23 Lína
Ýsa 2.575 kg
Þorskur 153 kg
Steinbítur 58 kg
Langa 47 kg
Keila 10 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 2.845 kg

Skoða allar landanir »

Loka