Sagður töfrateppi á fjórum hjólum

Það er ekki að ástæðulausu sem bílagagnrýnendur hafa gripið til þeirrar lýsingar að það sé líkast því að fara um á töfrateppi að aka nýjustu kynslóð Range Rover.

Reyndar er sú lýsing nokkuð málum blandin, enda ljóst að enginn þeirra sem grípa til líkingamálsins hefur nokkru sinni ferðast um á teppi einu saman. En ef maður ætti að gera sér slíkt ferðalag í hugarlund þá er vel þess virði að setjast upp í Range Rover PHEV og leggja í hann.

Og það er það sem við Moggamenn gerðum á dögunum þegar við litum við hjá sölumönnum BL á Hesthálsi. Fyrir valinu varð Autobiography útgáfa af bílnum en sérkenni hennar drógu ekki úr upplifuninni við aksturinn.

Stór og virðulegur að vanda

Range Rover hefur í áratugi haft sérstaka stöðu meðal annarra bílaframleiðanda. Því ræður bæði sá lúxus sem framleiðandinn hefur lagt áherslu á en þá hefur útlit bílsins alla tíð verið með þeim hætti að hann virkar óvenju stór og jafnvel þunglamalegur, sem aftur veldur því að hann er „virðulegri“ en aðrir bílar í sama stærðarflokki. Stórar vélar, einkum í seinni tíð, hafa hins vegar tryggt að viðbragð bílsins og aksturseiginleikar eru allt aðrir en virðist við fyrstu sýn.

Og nú hefur Land Rover kynnt til sögunnar fyrstu kynslóðina af Range Rover með tengiltvinnvél (e. plug-in hybrid). Nú þegar er búið að koma þeirri tækni fyrir í hinum klassíska og stóra Range Rover en einnig litla bróður hans, Sport. Að þessu sinni var reynsluakstur tekinn á stórabróður en hinn fær að bíða fram á nýja árið.

Raundrægni upp á 40 km

Líkt og flestir aðrir framleiðendur sem fetað hafa inn á tengiltvinn-markaðinn hefur Land Rover stigið hógvært skref í átt að rafvæðingu. Þannig segir fyrirtækið að bíllinn eigi að fara ríflega 50 km. á hverri hleðslu. Raunin er nær 40 km. Flestir þeir sem prufukeyra bílinn í fyrsta sinn munu hins vegar upplifa endingu rafhlöðunnar eins og að þar sé ekki rétt farið með. Það kemur til af því að þegar hart er gefið inn og kraftur bílsins prufaður til hins ýtrasta spænist rafhleðslan, eðlis máls samkvæmt, mjög hratt upp. Þegar ró er komin á mannskapinn og hann farinn að aka eins og fólk alla jafna gerir (ef það er hægt á bíl sem þessum) þá er hægt að taka ríflega 40 km rúnt á bílnum án þess að jarðefnaeldsneyti komi þar við sögu. Verður það að teljast harlagott miðað við að bíllinn er ríflega 2,5 tonn á þyngd og frekur til „rafmagns“-fjörsins þegar kemur að öllum þeim mikla þæginda- og tæknibúnaði sem hann er búinn.

Hljóðlaust fetar hann sig af stað

Þegar bíllinn er ræstur og hann tekinn úr rafhleðslu, gerir ökumaðurinn sér fljótlega grein fyrir því að það er ekki fjarri lagi að tala um töfrateppi þegar hann er annars vegar. Ekkert vélarhljóð og stiglaust tekur hann af stað, mjúklega. Líkt og með aðra rafknúna bíla kemur aflið beint út í dekkin um leið og stigið er á inngjöfina og það er augljós munur þar á miðað við það þegar notast er við orku frá sprengihreyfli. Og á rafmagninu skynjar ökumaðurinn bæði stöðugleika bílsins og það sem nefna mætti „skriðþunga“ mjög greinilega.

Og þægindin eru sérstakur kapítuli þegar kemur að Range Rover. Þessi útfærsla af bílnum er Autobiography og er hann m.a. búinn svokölluðum Executive Class Comfort-plus sætum. Framsætin í bílnum eru með 24 stefnustillingum, sem hægt er að nálgast og vinna með í hurð bílsins. Sætin eru afar þétt og mikil um sig og það er ekki að ástæðulausu. Í þeim er búnaður sem tryggir ekki aðeins réttan hita eða kælingu eftir þörfum heldur einnig það sem framleiðandinn kallar heitsteinanudd.

Með nokkuð einföldum hætti er hægt að velja ólíkar tegundir nudds, allt frá heilnuddi og til axlanudds með miklum eða litlum hita. Þennan búnað myndu einhverjir kalla gerviþægindi en fyrir þann sem er þreyttur eða þjakaður af streitu, getur það hljómað sem fegursta músík í eyrum að taka rúnt upp á Skipaskaga eða til Keflavíkur, þó ekki væri nema fyrir nuddið sem slíkt. Víst er að langkeyrsla norður í land eða vestur á firði verður mun léttari og þægilegri ef ökumaður og farþegi í framsæti geta öðru hvoru fengið herðanudd eða mýkt upp bakið með þessum búnaði.

Umhverfisvænn og „ódýr“

Þótt verðmiðinn á Range Rover sé á fæstra færi þá er tengiltvinnútgáfan á verði sem kemur nokkuð á óvart. Því ræður ekki síst sú staðreynd að bíllinn fellur í flokk umhverfisvænna bíla og nýtur af þeim sökum ívilnana frá hinu opinbera. Þær ívilnanir hafa m.a. mjög mikil áhrif til lækkunar á verði þess aukabúnaðar sem valinn er í hvert og eitt eintak. Í grunninn er hægt að fá P400e bílinn í Vogue útgáfu á 17,4 milljónir króna og er hann afar vel útbúinn. Bíllinn sem prófaður var kostar í grunnútfærslu tæpar 20 milljónir. Fjöldi möguleika til að hlaða bílinn búnaði gerir kaupendum hins vegar mjög auðvelt um vik að hækka verðið allverulega eða um nokkrar milljónir króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: