Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um innköllun á Audi A4 fólksbifreiðum. Um er að ræða 144 bifreiðar árgerð 2012-2014. Ástæða innköllunarinnar er sú að möguleiki er á að loftpúðar framan blásist ekki rétt upp við árekstur. Uppfæra þarf hugbúnaðinn í loftpúðastjórnboxinu.
Á vefsvæði Neytendastofu segir að eigendur viðkomandi bíla muni frá send bréf vegna þessarar innköllunar.