Opel og SsangYong flytja, Porsche stækkar

Bílabúð Benna býður í opnunarfagnað á Krókhálsi 9 á morgun, …
Bílabúð Benna býður í opnunarfagnað á Krókhálsi 9 á morgun, laugardag.

Bílabúð Benna býður á morgun, laugardag, til glæsilegs opnunarfagnaðar, í tilefni af flutningi á sýningarsölum Opel og Ssang Yong, í nýtt húsnæði að Krókhálsi 9.

Bílabúð Benna hefur upplifað marga stóra áfanga frá stofnun fyrirtækisins árið 1975, að sögn Benedikts Eyjólfssonar, forstjóra. „Flutningurinn núna á hluta fyrirtækisins, markar tímamót í starfseminni. Við erum að bregðast við aukinni sölu á Opel og SsangYong og höfum nú helmingi meira rými fyrir þá. Tilkoma nýja hússins gerir okkur líka kleift að auka þjónustuna í öðrum deildum fyrirtækisins, sem ekki flytja í Krókhálsinn,“ segir Benedikt.

Sem dæmi um frekari breytingar nefnir hann stækkun á sýningarsal Porsche á Vagnhöfða. „Nú gefst okkur tækifæri til að stækka Porsche salinn og bjóða upp á betri aðstöðu fyrir viðskiptavini sem og rýmri sýningaraðstöðu fyrir bæði nýja og notaða Porsche bíla. Margir spennandi hlutir eru í uppsiglingu frá framleiðendum Porsche, sem við munum kynna nánar á næstunni,“ segir Benedikt.

Fagnaður Bílabúðar Benna vegna flutninganna verður á Krókhálsi 9 á morgun milli kl. 12 og 16.

mbl.is