Nýr Sprinter heimsfrumsýndur

Ný kynslóð Sprinter er kominn á götuna og er væntanlegur …
Ný kynslóð Sprinter er kominn á götuna og er væntanlegur til Íslands í sumar.

Nýr Mercedes-Benz Sprinter var heimsfrumsýndur á dögunum en þetta er þriðja kynslóð þessa vinsæla sendibíls sem mætir nú til leiks í nýrri og endurbættri útgáfu. Hann er búinn nýjustu tækni og verður fáanlegur í átta mismunandi stærðum en hann er væntanlegur til landsins í sumar.

Ný kynslóð bílsins hefur tekið þó nokkrum breytingum að innan sem utan. Útlitslínur eru nýjar sem og ljósabúnaður. Innanrýmið hefur verið bætt til að gera vinnuaðstöðu ökumanns enn betri en áður. Ný innrétting, aukin þægindi og meiri tækni verða í nýju útgáfunni.

Sprinter verður nú í boði með framhjóladrifi í fyrsta skipti og sömuleiðis með leyfða heildarþyngd að 5,5 tonnum. Öryggisbúnaður Sprinter hefur verið aukinn til muna frá fyrri gerð og verður m.a. fáanlegur með 360° myndavél.

„Mercedes-Benz Sprinter er vinsælasti atvinnubíll þýska bílaframleiðandans en sendibíllinn kom fyrst á Evrópumarkað árið 1995. Í 23 ár hefur Sprinter átt mikilli velgengni að fagna víða um heim ekki síst þar sem hann hefur reynst mjög áreiðanlegur og fjölhæfur auk þess sem hann þykir vel hannaður og prýðisgóður í akstri. Sprinter er vinsæll atvinnubíll og ekki að ástæðulausu. Hann er traustur, með mjög góða aksturseiginleika, aflmiklar en eyðslugrannar og umhverfisvænar vélar,“ segir í tilkynningu.

Sprinter er flaggskip ört stækkandi sendibílaflota Mercedes-Benz. Þegar bíllinn kom fyrst á markað var hann frumkvöðull í flokki atvinnubíla Mercedes-Benz. Hann var fyrsti atvinnubíllinn frá bílaframleiðandanum sem fékk sjálfstætt nafn en áður höfðu módelin einungis borið tölustafi.

Á Íslandi er Sprinter vinsælasti bíllinn í flokki stórra sendibíla en hann hefur líka verið vinsælasti hópferðabíllinn í sínum flokki um árabil.

mbl.is