Líf og fjör var í höfuðstöðvum Heklu á stórsýningu á dögunum. Til sýnis voru bílar af öllum stærðum og gerðum með áherslu á jeppa og jepplinga en Hekla býður upp á eina fjórtán slíka og hefur úrvalið aldrei verið meira.
Mitsubishi frumsýndi þann nýjasta, sportjeppann Eclipse Cross, sem er viðbót við módelin Pajero, ASX og L200 svo og Outlander.
Í Audi salnum átti Q-línan sviðið með Q2, Q5 og Q7 og fremstir í fararbroddi í Skoda salnum voru Kodiaq og litli bróðir hans Karoq sem var frumsýndur nýverið.
Það vantaði ekki breiddina hjá Volkswagen sem bauð upp á Amarok, Tiguan, Tiguan Allspace og T-Roc sem var frumsýndur fyrir skemmstu.
Í tilefni sýningarinnar voru ýmis tilboð og má þar nefna aukahlutapakka að andvirði 200.000 kr. með hverjum keyptum Volkswagen T-Roc, Skoda Karoq, Skoda Kodiaq og Mitsubishi Pajero. Mitsubishi Outlander PHEV fylgdi enn fremur þjónustuskoðun í tvö ár og Audi Q5 fékkst tilboðsverði. Allir nýir fólksbílar frá Heklu koma að auki með fimm ára ábyrgð.