Tilboð og egg á páskafjöri

páskafjör Brimborgar

Bifreriðaumboðið Brimborg boðar fjör um páska sem felst meðal annars í því, að páskaegg númer 7 fylgir öllum seldum bílum fram að páskum.

„Við ætlum að vera með geggjuð tilboð á nýjum og notuðum bílum,“ segir í tilkynningu. Þar segir einnig að á laugardögum fram að páskum verði páskaeggjaleit hjá umboðinu fyrir litlu börnin.

Brimborg er að finna á þremur stöðum, Mazda, Citroën og Peugeot á Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Ford og Volvo á Bíldshöfða 6 í Reykjavík og svo öll bílamerkin hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri. Fyrirtækið hefur veitt víðtæka bílaþjónustu í yfir 50 ár og er í hópi stærstu bílaumboða landsins og með eitt mesta bílaúrvalið.

mbl.is