190 km á sjálfstýrðum Hyundai Nexo

Stilltir á sjálfstýringu óku þrír nýir rafknúnir vetnisbílar af gerðinni Hyundai Nexo og tveir af gerðinni Hyundai Genesis G80 sjálfir um 190 km leið frá Seoul til Pyeongchang í Suður-Kóreu án þess að ökumenn þeirra skiptu sér nokkurn tímann af akstrinum á leiðinni.

Ökuferðin, sem farin var í byrjun febrúar, gekk eins og í góðri sögu og samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá Hyundai var þetta í fyrsta sinn sem svokallað fjórða stig í þróun sjálfstýringarkerfis fyrir bíla var virkjað í rafknúnum vetnisbílum.

Hyundai Nexo er væntanlegur á Evrópumarkað síðar á þessu ári, þar á meðal til Hyundai á Íslandi.

Hingað til hefur sjálfvirkni fólksbíla verið ýmsum takmörkunum yfirvalda í einstökum löndum en þetta var í fyrsta sinn sem sjálfvirkum bíl var ekið svona langa vegalengd og á hraða sem var allt að 110 km/klst sem er leyfður hámarkshraði á hraðbrautum Suður-Kóreru. Bílarnir voru allir búnir fjórðastigstækni sjálfstýringar sem m.a. styðst við 5G netsamband.

Ferðalagið hófst með því að ökumennirnir völdu tiltekinn áfangastað í Pyeongchang í leiðsögukerfi bílanna og ýttu svo á hnappana „cruise“ og „set“ á stýrishjólinu. Þá þegar virkjaðist sjálfstýringin og bílarnir lögðu af stað í ferðalagið 2. febrúar frá Seoul. Þegar bílarnir fóru inn á fyrstu hraðbrautina mat kerfið umferðarþungann og hraða annarra bíla á veginum og aðlöguðu bílarnir sig þannig umferðinni. Þeir skiptu um akreinar ef þurfti og greiddu veggjald í tollhliðunum með þráðlausa HI-passanum sem hægt er að kaupa aðgang að þar í landi.

Búnaðurinn ber fullkomlega skynbragð á önnur ökutæki í umferðinni, gangandi vegfarendur, tollhlið, umferðarskilti, hringtorg og annað sem þarf til að komast áfallalaust á áfangastað án þess að „ökumaðurinn“ þurfi nokkurn tímann að grípa inn í.

Auk G5 netsambands styðjast bílarnir líka við GPS-staðsetningar í leiðsögukerfinu og því var öllu óhætt þótt netsambandið slitnaði tímabundið á leiðinni til Pyeongchang, ekki heldur þegar ekið var um löng veggönd þar sem hvorki var G5 eða GPS-samband. Í göngunum einbeitti sjálfstýringin sér að veginum og nálægri umferð með aðstoð skynjaranna sem bílarnir eru búnir og endurstaðsetti kerfið sig jafnskjótt aftur þegar komið var út úr göngunum.

Áður en lagt var af stað til Pyeongchang hafði Hyundai framkvæmt fjölda tilraunaferða til mismunandi áfangastaða sem spanna í heild þúsundir kílómetra í akstri. Á þessum tíma hefur miklum upplýsingum verið safnað í gangnagrunn sérfræðinga fyrirtækisins sem nýst hefur við lokaprófanir á sjálfstýringarkerfinu. agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: