Sumargleði í Brimborg

Bílaumboðið Brimborg efnir á morgun, laugardag, til sumargleði bæði í Reykjavík og á Akureyri.

„Það er sumargleði í Brimborg. Við erum með mögnuð sumartilboð á nýjum og notuðum bílum. Allt að 854.000 kr. afsláttur! Á laugardaginn verður lukkuhjól, Valdísarís og sápukúlur fyrir börnin. Gleðilegt sumar!,“ segir í tilkynningu.

Opið er hjá Brimborg virka daga frá 9-17 og laugardaga milli klukkan 12 og 16.

Brimborg hefur veitt víðtæka bílaþjónustu í yfir 50 ár og er í hópi stærstu bílaumboða landsins og með eitt mesta bílaúrvalið. Í boði er afar fjölbreytt úrval bíla og frábært verð og framúrskarandi þjónusta.

„Við erum á þremur stöðum! Mazda, Citroën og Peugeot á Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Ford og Volvo á Bíldshöfða 6 í Reykjavík og svo auðvitað öll okkar bílamerki hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri,“ segir jafnframt í tilkynningu bílaumboðsins.

mbl.is