Aðalskoðun með nýja færanlega skoðunarstöð

Færanlega skoðunarstöðin verður tekin í notkun fimmtudaginn 17. maí
Færanlega skoðunarstöðin verður tekin í notkun fimmtudaginn 17. maí

Næstkomandi fimmtudag 17. maí mun Aðalskoðun kynna til leiks nýja og færanlega skoðunarstöð sem er fullbúin tækjum sem þarf til að skoða fólksbíla. Færanlega skoðunarstöðin er fest ofan á Mercedes-Benz flutningabíl.

„Við erum ákaflega ánægð og stolt að geta boðið upp á þessa þjónustu hér á landi. Með nýju færanlegu skoðunarstöðinni getum við þjónustað viðskiptavini enn betur og á stærra svæði en við gerum í dag. Við bjóðum fyrirtækjum upp á þann möguleika að koma á staðinn og skoða bílaflotann, sem er einstaklega hentug þjónusta fyrir fyrirtæki sem hafa yfir stórum bílaflota að ráða, en einnig þau fyrirtæki sem sjá hag sinn í að bjóða starfsmönnum upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma. Þetta sparar tíma fyrir starfsmenn og fyrirtæki og býður upp á mikla hagræðingu fyrir fyrirtæki,“ segir Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, í tilkynningu.

Færanlega skoðunarstöðin verður tekin í notkun þann 17. maí með pompi og prakt í Hafnarfirði kl. 16 og verður til sýnis í Reykjanesbæ þann 18. maí kl. 16.

mbl.is