Sýna nýja útgáfu Lexus RX 450h

Á morgun, laugardaginn 26. maí, verður ný útfærsla af lúxussportjeppanum Lexus RX 450h frumsýnd hjá Lexus í Kauptúni, Garðabæ.

Þetta er lengri útgáfa þessa vinsæla bíls og er hann 7 sæta í þessari útfærslu. Með stækkun bílsins fer enn betur um farþega en áður og farangursrými eykst ef aukasætin eru ekki í notkun.

Ekki þurfti að lenga bílinn mikið til að koma aukasætunum fyrir og er hann aðeins 11 sentimetrum lengri en fimm farþega útgáfan.

Lexus RX 450 er búinn V6 bensínvél og rafmótor í aflrásinni sem skilar samtals 313 hestöflum. Eyðsla er frá 5,3 l/100 km og hröðun frá 0-100 km er 7,7 sekúndur.

Sýningin á morgun er opin frá kl 12 – 16 og þar má að auki sjá aðrar gerðir Lexus og reynsluakstur er í boði.

mbl.is