Skoðunarstöðin fer um landið

Skoðunarstöðin er fest ofan á Mercedes-Benz vörubíl.
Skoðunarstöðin er fest ofan á Mercedes-Benz vörubíl.

Aðalskoðun tók á dögunum í notkun nýja og færanlega skoðunarstöð. Með henni getur fyrirtækið  þjónustað viðskiptavini enn betur og á mun stærra svæði en áður.

„Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum. Það er greinilegt að fyrirtæki sjá tækifæri til hagræðingar með þessari þjónustu og við erum stolt og ánægð að geta veitt slíka þjónustu,“ segir Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, í tilkynningu.

Færanlega skoðunarstöðin er fest ofan á Mercedes-Benz flutningabíl og fullbúin tækjum sem þarf til að skoða fólksbíla. Aðalskoðun mætir á svæðið og framkvæmir skoðun á bílum starfsmanna og bílaflota fyrirtækisins á staðnum.

„Við verðum á ferðinni í sumar og á heimasíðunni okkar, adalskodun.is, er hægt að fylgjast með staðsetningu stöðvarinnar hverju sinni. Í næstu viku, 25. - 29. júní, verður stöðin staðsett á Selfossi, við Framhaldsskólann á Suðurlandi. Við skoðum alla hefðbundna fólksbíla og jepplinga sem eru allt að 3,5 tonn að þyngd og veitum viðskiptavinum 20% afslátt,“ bætir Ómar við.

mbl.is