17,5% samdráttur í júní

Nýir bílar í Sundahöfn
Nýir bílar í Sundahöfn mbl.is/Árni Sæberg

Sala á nýjum bílum í nýliðnum júní dróst saman um 17,5% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 2.597 eintök samanborið við 3.146 í sama mánuði fyrra.

Með þessu eru nýskráðir bílar í júní 549 færri en í júní 2017, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu (BGS).

Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa verið nýskráðir 11.883 fólksbílar sem gerir 13,2% samdrátt frá sama tímabili í fyrra.

„Helsta breyting milli ára þegar horft er á sama tímabil, þ.e. janúar til loka júní má sjá að fjöldi bensín- og díselbíla er að dragast saman. Fyrstu sex mánuði ársins í fyrra var hlutfall bensín- og díselbíla 90,1% en fyrstu sex mánuði þessa árs eru 82% skráðra fólksbíla bensín eða dísel. Má því sjá að töluverð breyting er á vali á orkugjöfum í bíla milli ára,“ segir í tilkynningu frá BGS.

mbl.is