Kia aftur efst hjá J.D Power

Kia Rio náði efsta sætinu í flokki smábíla.
Kia Rio náði efsta sætinu í flokki smábíla.

Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningarfyrirtækisins J.D. Power yfir bílamerki sem ekki teljast til lúxusmerkja.

Þetta er fjórða árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power, að því er fram kemur í tilkynningu. Í þessari könnun J.D. Power voru bíleigendur nýlegra bíla spurðir um áreiðanleika þeirra og bilanir á fyrstu 3 mánuðum.

Tveir Kia bílar, Sorento og Rio, urðu í efstu sætunum í sínum flokkum. Kia Sorento varð í efsta sætinu í flokki sportjeppa og Kia Rio náði efsta sætinu í flokki smábíla. Kia Optima og Sportage urðu í öðru sætinu í sínum flokkum ásamt Forte og Sedonna sem ekki eru framleiddir fyrir Evrópumarkað.

,,Þetta er framúrskarandi árangur fyrir Kia og mjög ánægjulegt að merkið nái toppsætinu í þessari virtu könnun J.D. Power fjórða árið í röð. Við erum að sjálfsögðu afar stolt og ánægð með þennan árangur. Þetta sýnir svo ekki verður um villst mikil gæði og góða endingu nýrra Kia bíla. Við höfum mikla trú á bílum okkar og bjóðum til að mynda upp á 7 ára ábyrgð af nýjum bílum en enginn annar bílaframleiðandi í heiminum býður upp á svo langa ábyrgð," segir Michael Cole, einn af framkvædmastjórum Kia.

mbl.is