Benni frumsýnir nýjan Opel Grandland X

Nýr Opel Grandland X verður frumsýndur í sýningarsal Opel Krókhálsi 9 á morgun, laugardag, klukkan 12-16. Grandland X er flaggskip Opel í flokki sportjepplinga en þar eru fyrir Opel Crossland X og Mokka X.

„Crossland X hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur hér á landi en hann var frumsýndur nú í vor. Mokka X er einn mest seldi bíllinn í Evrópu í þessum flokki sem fer ört stækkandi
um allan heim,“ segir í tilkynningu.

Grandland X er stærstur af þessum þremur bílum og kemur hingað til landsins til að byrja með í tveimur útfærslum, Enjoy og Innovation. Báðar eru ríkulega búnar en meira af staðalbúnaði er að finna í Innovation. Báðar útfærslurnar af Grandland X sem koma hingað til lands eru framhjóladrifnar með sparneytnum, hljóðlátum, umhverfisvænum en um leið aflmiklum bensínvélum.

Bensínvélin  í Grandland X,  1,2 lítra Pure tech, var valin vél ársins 2018. Hún skilar 130 hestöflum og hámarkstogið er 230 Newtonmetrar. Eyðslan er aðeins frá 5,2-5,3 lítrar á hundraðið miðað við blandaðan akstur.

Sérstakt frumsýningartilboð verður í gangi en þar er um að ræða 200.000 króna afslátt af nýjum Opel Grandland X.

mbl.is