12 í úrslit í valinu á Bíl árisns 2019

Stálstýrið fær hlutskarpasti bíllinn til varðveislu.
Stálstýrið fær hlutskarpasti bíllinn til varðveislu.

Tólf bílar hafa verið valdir í úrslit í kjörinu um Bíl ársins 2019. Það er Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem sér um valið en þetta í tólfta skiptið sem BÍBB stendur fyrir því.

Alls voru 31 bílar tilnefndir í valinu. Bílunum var skipt í fjóra flokka eftir stærð en þrír efstu bílarnir í hverjum flokki komust í úrslit.

Í flokki minni fólksbíla komust Mercedes-Benz A-Class, Ford Focus og Kia Ceed í úrslit.

Í flokki stærri fólksbíla komust Volvo V60, Alfa Romeo Guilia og Kia Stinger í úrslit.

Í flokki minni fjórhjóladrifsbíla komust Hyundai Kona, Skoda Karoq og Volkswagen T-Roc í úrslit

og í flokki stærri fjórhjóladrifsbíla komust Volkswagen Touareg, BMW X3 og Volvo XC 40 í úrslit.

Bílarnir tólf, sem keppa til úrslita verða teknir í frekari prófanir hjá bílablaðamönnum í lok vikunnar og í kjölfarið verður tilkynnt um valið á Bíl ársins 2019. Hlutskarpasti bíllinn hlýtur verðlaunagripinn Stálstýrið. Í fyrra var Peugeot 3008 valinn Bíll ársins.

mbl.is