Þjóðverjar hafa verið eftirbátar annarra í þróun og framleiðslu rafdrifinna bíla. Hlutur þeirra mun rétta sig af með nýjum örlitlum rafbíl að nafni e.Go sem hafin er framleiðsla á.
E.Go er afurð samstarfs í tæknisamfélagi sem tengist háskólanum í Aachen en maðurinn á bak við bílinn er Günther Schüh, prófessor við skólann. Áhugi hans hefur legið á rafbílasviði. Áður en hann leiddi e.Go á framleiðslustig þróaði hann rafmagnssendibíl að nafni StreetScooter sem nú er í fullri framleiðslu undir verndarvæng þýska póstsins, Deutsche Post.
Þegar prófessorinn hafði selt póstinum framleiðslu StreetScooter hófst hann handa við þróun rafknúins fólksbíls. Naut hann meðal annars fulltingis ítalska hönnuðarins Paolos Spada. Risin er bílsmiðja við Aachen og framleiðslan komin í gang. Nam fjárfesting í henni 26 milljónum evra og þar af lagði héraðið Nordrhein-Westfalen fram tíund upphæðarinnar.
Fyrst um sinn verður um forsmíði að ræða áður en eiginleg raðsmíði hefst. Fyrstu kaupendur e.Go munu fá bíla sína afhenta síðar á árinu. Þegar bílsmiðjan verður fullmönnuð í haust og þeir allir 142 klárir í smíðina verður afkastageta bílsmiðjunnar 10.000 eintök á ári. Áætlanir gera og ráð fyrir því að tvöfalda afkastagetuna, eða í 20.000 eintök, frá og með miðju næsta ári.
Nýi þýski rafbíllinn verður fáanlegur í þremur útgáfum með 14,9 kWh, 17,9 kWh eða 23,0 kWh rafgeymi. Drægi þeirra á fullri hleðslu verður 121, 142 og 184 kílómetrar.
Rafmótorarnir verða og misjafnlega afkastamiklir, eða 20, 40 og 60 kílóvatta. Verður hröðun þeirra og topphraði þar af leiðandi misjafnlega mikill en það skiptir litlu máli þar sem e.Go er fyrst og fremst hugsaður sem borgarbíll, eða þéttbýlisþjónn.
Til að gefa hugmynd um fyrirferð bílsins í þéttbýli þá er hann 3,35 metra langur, 1,70 metra breiður, 1,57 metra hár og hjólhafið 2,20 metrar. Tómaþungi verður 880, 900 og 950 kíló og hámarksþungi með farþegum og farangri 1.300 kíló.
Í Þýskalandi hafa e.Go-bílarnir fengið verðmiða. Sá ódýrasti fer á 15.900 evrur, miðbíllinn 17.400 evrur og sá öflugasti á 19.900 evrur. Eru rafgeymar innifaldir í verðinu.
agas@mbl.is