BL afhendir þúsundasta rafbílinn

BL við Sævarhöfða hefur afhent eitt þúsundasta rafbílinn frá því að fyrirtækið seldi fyrsta bílinn 12. júlí árið 2013. Það var Nissan Leaf sem ekið hefur verið tæpa 70 þúsund kílómetra enda slær hann aldrei „feilpúst“ því Nissan Leaf er að sjálfsögðu púströr- og útblásturslaus 100% rafbíll.

Það var Guðjón Hugberg Björnsson sem fékk afhenta lyklana af Leaf númer 1.000 í sýningarsalnum við Sævarhöfða í vikunni og við þau tímamót var einnig mættur fyrsti rafbíllinn í salinn, sem er í eigu Hörpu Hrundar Bjarnadóttur.

Í tilkynningu frá BL segir, að á fyrstu tíu mánuðum ársins hefur sala hreinna rafbíla vaxið í landinu um 47,3% miðað við sama tímabil síðasta árs á meðan bílasala hefur almennt dregist um tæp 13%.

Hlutdeild BL í rafbílasöluni er 68% en auk Leaf selur BL einnig rafbílana Nissan e-NV200, Renault Zoe og Kangoo, BMW i3, Hyundai Ioniq, Kona og fleiri tegundir. Nýjasti meðlimur hreinna rafbíla hjá BL er Jaguar I-Pace sem kynntur var fyrr í þessum mánuði.

mbl.is