Hekla framúrskarandi

Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu og hópur starfsmanna fagnar viðurkenningunni.
Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu og hópur starfsmanna fagnar viðurkenningunni.

Hekla hf. tók í vikunni við viðurkenningu sem „Framúrskarandi fyrirtæki 2018“ en þetta er annað árið í röð sem Hekla tekur á móti þessari viðurkenningu.

Um 2% íslenskra fyrirtækja koma til greina sem Framúrskarandi fyrirtæki 2018 en Creditinfo veitti á dögunum téða viðurkenningu í níunda sinn. Hekla er meðal þeirra fyrirtækja og tók Hjördís María Ólafsdóttir markaðsstjóri við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

„Samkvæmt Creditinfo er meginmarkmið greiningarinnar að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa en til grundvallar liggja ávallt síðustu þrjú rekstrarár,“ segir í tilkynningu.

„Við hjá Heklu tökum stolt við viðurkenningu Creditinfo sem eitt af þeim 2% íslenskra fyrirtækja er hljóta titilinn Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Það er afar ánægjulegt að hljóta þessa viðurkenningu og sýnir að bílaumboð eiga fullt erindi þarna inn. Starfsfólk Heklu leggur hart að sér til að sinna góðu starfi og það sannar sig hér,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu.

mbl.is