Kynna Konu í Garðabæ

Rafbíllinn Hyundai Kona verður frumsýnd á morgun hjá Hyundai á …
Rafbíllinn Hyundai Kona verður frumsýnd á morgun hjá Hyundai á Íslandi.

Hyundai á Íslandi kynnir á morgun, laugardaginn 17. nóvember milli kl. 12 og 16, rafknúna borgarsportjeppann Kona, sem er fyrsti jepplingurinn á Evrópumarkaði sem boðinn er í 100% rafdrifinni útgáfu.

Kona Electric er með 204 hestafla rafmótor við 64 kWh rafhlöðu sem dregur allt að 482 km samkvæmt mælistaðlinum WLTP. Hægt er að hlaða rafhlöðuna í 80% á innan við klukkustund.

Hægt er velja milli þriggja akstursstillinga; Eco, Comfort og Sport og breytist viðmót mælaborðsins eftir því hvaða stilling er valin. Hámarkshraði rafbílsins er 167 km/klst og hröðunin aðeins 7,6 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Er krafturinn í bílnum eitt það fyrsta sem fólk nefnir að loknum bíltúr og áberandi í umfjöllunum blaðamanna sem prófað hafa bílinn.

Snjöll tækni

„Kona Electric er búinn öllum helstu tæknilausnum Hyundai, bæði hvað varðar öryggisbúnað og snjalltækni afþreyingar. Sem dæmi má nefna lyklalaust aðgengi og speglun akstursupplýsinga á framrúðuna framan við ökumann, skynvædda hraðastillingu sem heldur öruggu bili frá næsta bíl á undan, sjálfvirka skiptingu milli háa og lága ljósgeislans við mætingu bíla, akreinavara, blindhornsviðvörun, árekstarvara, bakkmyndavél, þráðlausa símahleðslu, USB og AUX auk mjög góðra hljómtækja frá Krell sem tengd eru Apple Car Play og Android Auto2. Þá er Kona Electric ennfremur búinn notendavænum 8“ snertiskjá með leiðsögukerfi og með raddskipun á ensku er hægt að biðja afþreyingakerfið um að hringja í þau númer sem vistuð eru í símanum,“ að því er segir í tilkynningu frá Hyundai.

Fjölbreytt val

Rafdrifin útgáfa Kona er í samræmi við mikinn metnað Hyundai á umhverfissviði sem endurspeglast ekki síst í þeirri stefnu að bjóða mismunandi græna orkugjafa. Þannig var Hyundai fyrsti bílaframleiðandinn til að bjóða sama bílinn með vali um þrjá orkugjafa, en það var IONIQ sem hægt er að fá sem tvinnbíl, tengiltvinnbíl eða 100% rafbíl. Nú er hægt að fá Kona hvort heldur sem er með bensínvél eða rafmótor.

Hyundai Kona kemur á 17 tommu álfelgum og er grunnverð bílsins með 64kWf rafhlöðu 5.190.000 krónur.

mbl.is