Hreinræktaður Audi jeppi forsýndur

Hekla forsýndi hreina rafjeppann Audi e-tron 55 quattro um nýliðna …
Hekla forsýndi hreina rafjeppann Audi e-tron 55 quattro um nýliðna helgi.

Hekla forsýndi hreina rafjeppann  Audi e-tron 55 quattro í síðustu viku. Von er á fyrstu bílunum til landsins í mars eða apríl á næsta ári en nú þegar hafa hátt í hundrað bílar verið pantaðir í forsölu.

Segir Árni Þorsteinsson sölustjóri þetta endurspegla eftirvæntingunni sem ríki eftir þessum fyrsta 100% rafdrifna jeppa Audi.

„Forsala hefur gengið framar vonum og spennan er mikil. Við erum loksins komin með alvöru jeppa sem gengur að fullu fyrir endurnýtanlegu íslensku rafmagni. Að þessu sinni fengum við Audi e-tron 55 quattro til okkar einungis í nokkra daga og er hann nú þegar á leiðinni til Bretlands þar sem hann verður sýndur næst. Hönnun Audi er auðvitað mögnuð sem endranær og skemmtilegar nýjungar í þessum jeppa á borð við sýndarhliðarspegla njóta sín vel,“ segir Árni í tilkynningu frá Heklu.

Audi e-tron 55 quattro er með ríflega 400 km. drægi samkvæmt WLTP-staðlinum og er 5,7 sekúndur í hundraðið. Hann er með tvo rafmótora og stuðlar rafrænt aldrifið að góðum aksturseiginleikum. Fjöldi hleðslumöguleika er fyrir hendi og jeppinn nýtir alla nýjustu tækni þannig að hægt sé að njóta aksturs á rafmagnsjeppa án málamiðlana.

Þegar ekið er af stað eru afköstin sambærilega við sportbíl og veitir nýja rafdrifna aldrifið besta mögulega veggripið við öll skilyrði á hvað undirlagi sem er.

Forsala bílsins stendur yfir á vefsetri Audi, audi.is

Fjölmenni sótti frumsýningu Heklu á rafjeppanum Audi e-tron 55 quattro …
Fjölmenni sótti frumsýningu Heklu á rafjeppanum Audi e-tron 55 quattro um nýliðna helgi.

mbl.is