Opel Combo valinn sendibíll ársins

Opel Combo Cargo er væntanlegur til Bílabúðar Benna í febrúar …
Opel Combo Cargo er væntanlegur til Bílabúðar Benna í febrúar nk.

Opel Combo Cargo hefur verið valinn sendibíll ársins 2019. Að valinu komu 25 bílablaðamenn frá jafn mörgum Evrópulöndum. Opel Combo hlaut  127 stig og í öðru sæti varð  Mercedes Sprinter með 92 stig.

Viðurkenningin sendibíll ársins (IVOTY) er sú eftirsóttasta sem veitt er í flokki léttra atvinnubíla ár hvert. Opel hefur tvisvar áður hlotnast hún, fyrir Astra van árið 1999 og Vivaro árið 2002.

Úrslitin í valinu voru kynnt og verðlaun afhent á alþjóðlegu atvinnubílasýningunni sem nýlega fór fram í Hannover í Þýskalandi.

Bilabúð Benna er umboðsaðili Opel á Íslandi og segir Gestur Benediktsson sölustjóri miklar væntingar bundnar við þennan bílaflokk hjá Opel.

„Þeim hefur tekist virkilega vel upp við hönnun þessa bíls og greinilegt að áherslan á hagkvæmni, sveigjanleika og nýtingu rýmisins hefur fengið jákvæð viðbrögð. Sem dæmi er hægt að margfalda vöruflutningsrýmið með því að fella öll sæti niður í gólf að undanskildu bílstjórasætinu, en þannig má t.d. koma fyrir tveimur EURO-brettum, hlið við hlið. Opel Combo Cargo mun því henta sérstaklega vel fyrir rekstraraðila sem þurfa að skipta reglulega á milli fólks- og vöruflutninga.“ segir Gestur í tilkynningu.

Opel Combo Cargo verður fáanlegur í tveimur lengdum og er væntanlegur til Bílabúðar Benna í febrúar.

mbl.is