Hyundai lækkar verð á flestum gerðum

Hyundai Kona.
Hyundai Kona.

Hyundai á Íslandi hefur lækkað verð á völdum vinsælum gerðum af Hyundai í kjölfar
hagstæðra samninga sem náðust við Hyundai í Evrópu. Verðlækkunin, sem tók gildi nú um
áramótin, er á bilinu frá 100 til 300 þúsund króna eftir gerðum.

Þannig lækka t.d. tilteknar gerðir af Hyundai i10 og i20 um 100 þúsund krónur en fjórhjóladrifinn Tucson, einn vinsælasti bíllinn hjá Hyundai undanfarin ár, um allt að 300 þúsund krónur. Aðrir bílar, svo sem ný kynslóð Santa Fe og Kona lækka á bilinu frá 100 til 200 þúsund króna eins og sjá má á heimasíðu umboðsins.

Í tilefni nýs árs hefur Hyundai á Íslandi einnig ákveðið að bjóða þeim sem festa kaup á nýjum
Hyundai í janúar veglega vetrarpakka sem eru að verðmæti allt að 550 þúsundum króna, eins
og hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu BL og Hyundai.is.

mbl.is