Toyota frumsýnir nýjan RAV4

Frumburður nýrrar kynslóðar Toyota RAV4. Evrópufrumsýning hans fer fram hjá …
Frumburður nýrrar kynslóðar Toyota RAV4. Evrópufrumsýning hans fer fram hjá Toyota hér á landi á morgun, föstudag.

Toyota frumsýnir á morgun laugardaginn 5. janúar, frumburð nýrrar kynslóðar af RAV4 jepplingnum. Geta landsmenn þá séð nýjan og glæsilegan RAV4, fyrstir Evrópubúa.

Sýningin fer fram hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri. Opið verður frá kl. 12 – 16 og þá geta landsmenn séð nýjan og glæsilegan RAV4, fyrstir Evrópubúa.

Fyrsti RAV4 kom á markað 1994 og með honum kom ný gerð af bíl fram á sjónarsviðið, bíll sem sameinar kosti fólksbíla og jeppa. Nánast allir bílaframleiðendur hafa siglt í kjölfar Toyota og komið með svipaða bíla. Er þessi bílstærð ein sú vinsælasta í dag.

Sú nýja kynslóð RAV4 sem frumsýnd verður á morgun er ný frá grunni. „Útlit bílsins hefur vakið mikla athygli og er bíllinn gjörbreyttur að sjá og skartar hann öflugri og fágaðri sportjeppahönnun.

Inn í bílnum tekur við vel hannað umhverfi bæði fyrir ökumann og farþega. Farþegarými hefur verið stækkað og farangursrýmið er mikið. Þar má meðal annars auðveldlega koma fyrir fullorðinshjóli án þess að taka það í sundur. 

RAV4 er fáanlegur í bæði bensín- og Hybridútfærslum. Ný bensínvél skilar 173 hestöflum og ný 2.5l Hybridvél skilar 222 hestöflum og hröðun frá 0-100 km á 8,1 sekúndu.

Toyota Safty Sense öryggiskerfið er staðalbúnaður í RAV4 en það hjálpar við að skynja önnur ökutæki, hjólreiðafólk og gangandi vegfarendur í umhverfinu. RAV4 er einnig búinn LDA-akgreinaskynjara og sjálfvirkum hraðastilli. RAV4 er með 7 ára ábyrgð eins og aðrir bílar frá Toyota frá áramótum og kostar frá 5.090.000 kr.,“ segir í tilkynningu.

mbl.is