Askja opnar nýtt og fullkomið húsnæði fyrir KIA

Kia-húsið nýja við Krókháls.
Kia-húsið nýja við Krókháls.

Næstkomandi laugardag, 12. janúar, flytur Askja, sölu og þjónustu sína fyrir Kia bíla í nýtt og glæsilegt, sérhannað húsnæði að Krókhálsi 13. Sérstök opnunarhátíð verður haldin á milli klukkan 10-16.


Síðustu ár hefur Kia verið á Krókhálsi 11 þar sem Bílaumboðið Askja er til húsa. Þar er einnig að finna söludeild fólksbíla Mercedes-Benz sem fá nú enn meira pláss og verkstæði fyrir Mercedes-Benz fólks- og atvinnubifreiðar.  Askja er því með þessu að aðskilja vörumerkin sín tvö bæði í sölu og þjónustu.

„Síðustu 3 ár hefur Kia verið annað mest selda bílamerkið á Íslandi og hefur náð alveg ótrúlegum árangri bæði hér heima og erlendis. Þetta hefur verið lengi í deiglunni og orðið tímabært að gefa Kia meira svigrúm sem og Mercedes-Benz, en bæði merkin hafa náð góðum árangri hér á landi“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, í tilkynningu.

Nýja Kia húsið er um 4.000 fermetrar að stærð en þar má finna sýningarsal fyrir nýja bíla, forgreiningu, söluskoðanir, hraðþjónustu og fullkomið bílaverkstæði með 18 vinnustöðvum. Húsið er sérhannað sérstaklega með tilliti til bílaumboðs. Það stendur svo til að hafa 30 rafbílastæði í kringum húsið fyrir viðskiptavini og starfsfólk, en Kia í dag upp á sjö mismunandi gerðir rafbíla, tengiltvinnbíla og tvinnbíla.  Innan fimm ára mun Kia hafa 16 mismunandi gerðir rafbíla í sinni vörulínu.

Umhverfissjónarmið voru höfð í huga og má nefna að öll raforkunotkun hússins er vottuð Græna Ljósinu frá Orkusölunni sem er staðfest sem endurnýjanleg með upprunavottorðum. Þá hafa Askja og Reykjavíkurborg gengið frá samkomulagi um tilraunaverkefni til 2ja ára um sérstaka settjörn sem staðsett verður í borgarlandinu neðan við húsið og er hugsuð til að tryggja að allt regnvatn sem fellur á bílastæði sé hreint áður en það fer aftur út í jarðveginn. Þetta er verkefni verður unnið í samvinnu Öskju og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Mun stórbæta aðstöðuna

Meðal nýjunga fyrir viðskiptavini eru bílaþrif, hjólbarðaþjónusta og hjólbarðahótel, hraðþjónusta, glerhúðunarmeðferð fyrir lakk og framrúðuskipti. Sérstök tilboð verða á nýjum bílum og þjónustu fyrir viðskiptavini í tengslum við opnunina.

„,Þetta nýja hús mun stórbæta aðstöðuna og þjónustuna fyrir viðskiptavini Kia og starfsfólk Öskju. Við hjá Öskju höfum því nú þrjá sýningarsali og getum sýnt fleiri Kia og Mercedes-Benz fólks- og atvinnubíla í aðskildum húsum. Þetta er orðið tímabært hjá okkur enda fyrirtækið stækkað undanfarin ár og árangur beggja okkar vörumerkja hefur verið góður,“  segir Jón Trausti.

mbl.is