Fjölmenni lagði leið sína í sýningarsal Bílabúðar Benna á Krókhálsinum laugardaginn var og kynnti sér nýja SsangYong Rexton jeppa. Þar kom áhuga um jeppa saman á sama tíma og vetur konungur minnti á sig utandyra.
„Eftirvæntingin var mikil, enda vorum við að sýna jeppa sem sigraði í hörku samkeppni við þekktustu nöfnin á markaðnum,“ segir Gestur Benediktsson, sölustjóri hjá Bílabúð Benna, en bílnum hlotnaðist nýverið sú viðurkenning tímaritsins 4x4, að vera útnefndur fjórhjóladrifni bíll ársins.
„Rexton er einn fárra jeppa í dag sem er byggður á grind, með læstum millikassa og lágu drifi. Þar með er sannarlega ekki allt upp talið því að Rexton er hlaðinn tæknibúnaði og þægindum sem láta mun dýrari jeppa blikna í samanburði,“ segir Gestur í tilkynningu.
„Það mátti heyra á frumsýningargestum okkar að þeir voru sammála bílagagnrýnendum um að Rexton væri stórglæsilegur, jafnt utan sem innan. Rýmið kom líka mörgum á óvart, enda má segja að Rexton feli stærðina, en vel fer um 7 manns í bílnum. Þá vekur athygli að dráttargetan er heil þrjú tonn og svo fór verðið líka sérlega vel í fólk,“ segir Gestur.
Nokkrir notuðu tækifærið til að festa sér bíl á staðnum. „Við getum því ekki annað en verið ánægð með viðtökurnar,“ segir Gestur.