Kia Ceed vann þrefalt

Kia Ceed.
Kia Ceed.

Kia vann þrefaldan sigur á alþjóðlegu iF Design Awards á dögunum. Kia fékk hönnunarverðlaun fyrir allar þrjár tegundirnar af hinum nýja Kia Ceed en þriðja kynslóð þessa vinsæla fólksbíls var frumsýnd nýverið.

Allar þrjár útfærslurnar af Ceed, hinn hefðbundni 5 dyra hlaðbakur, Sportswagon og ProCeed unnu allar til hinna eftirsóttu iF verðlauna. Sportswagon er í skutbílsútfræslu en ProCeed í svokallaðri Shooting Brake útfærslu.

Kia hefur unnið til fjölda alþjóðlegra hönnunarverðlauna undanfarin ár fyrir bíla sína. Kia hefur átt mjög góðu gengi að fagna á iF hönnunarverðlaununum. hefur hlotnast alls 18 þeirra frá 2010 og þrívegis unnið þrennu eins og nú.

mbl.is