Bentley eða Rolls-Royce

Nýr Bentley Bentayga á bílasýningunni í Genf fyrir tæpum mánuði. …
Nýr Bentley Bentayga á bílasýningunni í Genf fyrir tæpum mánuði. Nær er svo gamalt og gott módel frá Bentley. AFP

Frakkar eru smekkmenn á bíla, ekki síst ofurlúxusbíla. Franska bifreiðaskráin hefur nú svarað þeirri spurningu hvaða lúxusbílar eru algengastir þar í landi.

Spurt var hvorir væru skráðir fleiri, bresku eðalvagnarnir Bentley eða Rolls-Royce. Þegar tölurnar lágu fyrir var ljóst að niðurstaðan væri afgerandi.

Reyndust vera 2.992 eintök af Bentley á frönskum vegum en 1.837 eintök Rolls-Royce.

Munurinn á útbreiðslu þeirra um landið getur verið mikill. Á Parísarsvæðinu til dæmis eru skráðir 1.064 Bentleyjar og 523 Rolls-Royce. Á Miðjarðarhafssvæðinu eru 721 Bentley og 523 Rolls.

Jafnræði er hins vegar með tegundunum í héraðinu Hauts-de-France nyrst í Frakklandi eða 107:100 Bentley í vil. Í Pays de la Loire á vesturlandinu er nákvæmlega 65 eintök af hvoru módeli skráð. Bara á Korsíku eru fleiri Rolls en Bentley, eða 17 gegn 12, að því er fram kemur í bílablaðinu Auto Plus.

mbl.is