Þjónustudagur Toyota á morgun

Bílar þrifnir í krók og kring á þjónustudegi Toyota í …
Bílar þrifnir í krók og kring á þjónustudegi Toyota í fyrra.

Starfsfólk Toyota er búið að gera klárt fyrir árlegan þjónustudag sem verður á laugardag, 18. maí, frá kl 11 – 15.

Toyotaeigendur eru boðnir velkomnir til söluaðila Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi.

„Viðurkenndir þjónustuaðilar Toyota láta ekki sitt eftir liggja og geta Toyotaeigendur því einnig komið til Arctic Trucks á Kletthálsi, á Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur á Bæjarflöt, Bílatanga á Ísafirði, Bílageirann í Reykjanesbæ og, Bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki,“ segir í tilkynningu.

Bílarnir verða þvegnir, boðið upp á grill og gos og gestir leystir út með sumarglaðningi.

Vel er jafnan mætt á þjónustudegi Toyota.
Vel er jafnan mætt á þjónustudegi Toyota.
mbl.is