Sumargrill Toyota

Glatt verður á grillinu hjá Toyota
Glatt verður á grillinu hjá Toyota

Laugardaginn 15. júní næstkomandi, frá kl. 12 – 16, verður alvöru grillstemmning hjá Toyota í Kauptúni í Garðabæ.

„Kokkarnir frá Kjötkompaníi mæta snemma og hita grillið þannig að lokkandi ilmurinn af nýgrilluðum steikum mætir gestum,“ segir í orðsendingu frá Toyota.

Í sýningarsal verður öll Toyotalínan og vakin er sérstök athygli á bílum sem komið hafa nýir á þessu ári. Þetta eru RAV4, Corolla sem fáanleg er í þremur gerðum og síðan Camry, stór og glæsilegur fólksbíll sem nú fæst aftur á Íslandi eftir nokkurt hlé.

200.000 kr. aukahlutapakki fylgir öllum nýjum bílum öðrum en Land Cruiser Adventure og Hilux Invincible en þeim fylgir ávallt veglegur aukabúnaður.

Í tilefni af umhverfismánuði Toyota fá gesti birkigræðlinga að gjöf en nú er góður tími til huga að plöntun trjáa.

mbl.is