Þar sem ökumenn vöruflutningabíla þurfa að sitja klukkustundum saman við stýrið getur það reynst þeim erfitt að halda líkamanum í góðri þjálfun.
Vörubílaframleiðandinn Iveco álítur þetta vandamál sem verði að leysa og býður upp á lausn sem bílsmiðurinn kallar „Klefi í formi“.
Á utanverðum bílnum með þjálfunarbúnaðinum eru sérstakir krókar og festingar fyrir hin ýmsu tæki og inni í stjórnklefanum er að finna sérlegan búnað til alls konar æfinga, aðallega með köðlum og lyftingatækjum. Segir Iveco að samspil þessara tækja bjóði upp á ræktun og þjálfun alls líkamans.
agas@mbl.is