„Ódýrustu hestöfl í heimi“

Hilmar við Golfinn sinn góða. Honum tókst að gera vélina …
Hilmar við Golfinn sinn góða. Honum tókst að gera vélina nærri 200 hestöflum sterkari. Ganga má mislangt við aflbreytingar á bílum. mbl.is/Arnþór Birkisson

Lítil hefð er fyrir því á Íslandi að breyta bílum svo þeir verði kraftmeiri og sportlegri. Núna má samt greina merki þess að fleiri eru farnir að sýna afl- og útlitsvörum athygli, enda tiltölulega ódýr leið til að gera hversdagslegan bíl að bandbrjáluðu tryllitæki.

Hilmar Gunnarsson, arkitekt og bílaáhugamaður, opnaði nýlega aflvöruverslunina Kraftawerk, eftir að hafa rekið sig á hve snúið það getur verið að finna aflaukandi íhluti á Íslandi og fá vana menn til að koma búnaðinum rétt fyrir. „Ég þurfti að hafa mikið fyrir því að breyta mínum bíl en lærði svo mikið af ferlinu að mig langaði til að nýta þekkinguna og auðvelda öðrum í sömu sporum að breyta sínum bílum,“ segir hann.

Vanda þarf til verka

Spurður hvers vegna bílabreytingamenningin hafi ekki skotið rótum á Íslandi fyrr (ef upphækkaðir jeppar eru undanskildir) segir Hilmar að sennilegasta skýringin sé að vöntun hafi verið á faglegri þjónustu. Ekki sé sama hvernig átt sé við aflrás bíla og þurfi fólk með ákveðinn bakgrunn og þekkingu í verkið til að öruggt sé að breytingarnar valdi ekki skemmdum. Er það einmitt af þeim sökum að Kraftawerk sérhæfir sig í ákveðnum tegundum frá Volkswagen-samsteypunnni: VW, Audi, Skoda og Seat, og verslar fyrirtækið við aflvöruframleiðendur sem hafa margra ára og áratuga reynslu af smíði búnaðar fyrir þessar bíltegundir.

Eru þetta framleiðendur á borð við Racingline, TCR, Airtec og 034 Motorsport, en vöruúrvalið spannar allt frá aflaukningarforritun á vélartölvum og túrbínum yfir í sportlegar felgur.

Úr tæplega 300 upp í 500 hestöfl

Fyrir tiltölulega litla fjárfestingu má gera heilmikið fyrir bílinn og segir Hilmar að kosti um 79.000 kr. án vsk. að gera forritunarbreytingar á VW-vél til að framkalla 80 hestöfl til viðbótar. „Þetta eru ódýrustu hestöfl í heimi,“ segir hann og bætir við að almennt sé talað um þrjú stig í aflbreytingum:

„Fyrsta stigið felur eingöngu í sér að breyta forritun tölvunnar sem stýrir vélinni. Á stigi tvö bætist við endurforritun tölvunnar sem stýrir gírskiptingunni og að skipta um bæði kaldaloftsinntak og afrör (e. downpipe),“ útskýrir Hilmar, en endurforritunin hefur t.d. áhrif á hve mikið eldsneyti og súrefni er tekið inn í sprengihólf vélarinnar og á hvaða tímapunkti neista er hleypt á blönduna. Endurforrituð gírskipting gefur hraðari gírskiptingar og hærri þrýsting á kúplingar, til að skila meiri snerpu. „Loks er þriðja stig þar sem túrbínunni er skipt út og háþrýstings bensíndælu komið fyrir.“

Samhliða aflbreytingunum gæti þurft að gera breytingar á t.d. hemlunarbúnaði, fjöðrun og jafnvægisstöngum, enda þarf bíllinn að ráða við hraðann. Ráðleggur Hilmar að fá betri bremsupúða samhliða fyrsta stigs breytingu en þegar komið er upp á annað stig gæti þurft að skipta um bremsudiska og -dælur.

Sjálfur gerði Hilmar ýmsar breytingar á sínum Volkswagen Golf R svo að kraftur vélarinnar fór úr tæpum 300 upp í tæplega 500 hestöfl og kostaði hann samanlagt um 2,5 milljónir. Nýr myndi óbreyttur Golf R kosta frá um 7,5 milljónum og er kostnaðurinn því samanlagt um 10 milljónir fyrir bíl sem er þó töluvert ódýrari en þýskir sportbílar með jafn kraftmikla vél.

Spurður hvaða ókosti það kunni að hafa í för með sér að eiga við vél og gírskiptingu segir Hilmar að neytendaábyrgð nái ekki yfir skemmdir sem rekja megi til breytinganna. Að öðru leyti er ekki að sjá að aflbúnaður hafi t.d. neikvæð áhrif á endursöluverð eða bensíneyðslu. „Á beinum köflum eyðir minn u.þ.b. níu lítrum á hundraðið, sem er kraftaverki líkast fyrir svona aflmikinn bíl, og endursöluverð breyttra bíla virðist endurspegla þá fjárfestingu sem búið er að leggja í þá, með svipuðum afföllum og gildir um notaða bíla almennt,“ segir hann og bætir við að víða erlendis megi finna bílasölur sem eru sérhæfðar í sölu notaðra aflbreyttra bíla.

Að njóta bílsins og nota kraftinn

En hvað er það sem kveikir svona í þeim sem vilja gera bílinn sinn kröftugri? Og hví ekki að spara í staðinn fyrir bíl sem kemur með krafta í kögglum beint frá framleiðanda? Hilmar segir ýmsar ástæður fyrir því að fólk kjósi frekar að breyta bílnum sínum. Þannig bjóði aflvörurnar upp á að sníða eiginleika bílsins að óskum og hugmyndir eigandans. Öðrum þyki gaman að vera á aflmiklum bíl sem beri samt lítið á, og leyfa kraftinum að koma öðrum á óvart. Sjálfur notar Hilmar sinn Golf bæði sem vinnubifreið, heimilisbíl og sem keppnisleikfang og er nú þegar kominn með um 60.000 km á mælinn eftir tæplega tveggja ára akstur.

„Að vera á tiltölulega ódýrum en aflmiklum bíl þýðir að maður leyfir sér að nota bílinn meira og aka honum af hörku. Í akstursíþróttunum sjáum við lítið af dýrum sportbílum í keppni einmitt vegna þess að þótt þá skorti ekki aflið getur það kostað dýra viðgerð ef eitthvað skemmist eða gefur sig. Er það þekkt víða erlendis að þeir sem eiga allra dýrustu og kraftmestu bílana nota þá sem stöðutákn og skraut á Instagram-myndum frekar en að láta það eftir sér að nota bílana eins og þeir voru hannaðir til að aka, og njóta akstursupplifunarinnar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: