Hafir þú lesandi góður lengi viljað eignast þaklausan lítinn sportjeppa en hvergi fundið þá er Volkswagen líklega að koma með lausnina fyrir þig.
Blæjubíllinn Volksawgen T-Roc Cabriolet er svarið en hans er að vænta á markað á næsta ári, 2020. Það tekur aðeins níu sekúndur að opna eða loka þakinu á allt að 30 km/klst ferð. .
Löng hefð er fyrir því að jeppaframleiðendur bjóði upp á módelútgáfu með opnanlegu þaki. Koma þar strax í huga Jeep, Land Rover og Suzuki.
Nokkuð hlé hefur þó verið á framboði af þaklausum jeppum, ef svo má segja, eða þangað til Range Rover Evoque birtist skyndilega þaklaus fyrir árabili.
Nú er röðin komin að Volkswagen að reyna fyrir sér í þessum geira. Undirvélarhlífinni má velja milli eins líters þriggja strokka vélar, sem skilar 115 hestöflum, eða 150 hesta 1,5 lítra vélar.