Leigja heimreiðar til að komast í loftið

Mun ódýrara er að leigja heimreið eða stæði við heimahús …
Mun ódýrara er að leigja heimreið eða stæði við heimahús en leggja bíl á flugvöllum dögum saman.

Ein aðferð til að fjármagna sumarfríið er að leigja öðru fólki á leið í frí heimreið þína eða stæði við bílskúrinn.

Óteljandi fjölskyldur í Bretlandi þéna nú að meðaltali rúmlega 1.000 sterlingspund, um 150.000 krónur, á ári með því að leigja fólki á leið í frí stæði við heimili þeirra.

Leigan er langt undir því verði sem kostar að geyma bíl á stðum flugvalla. Með því að fara þessa leið segir vefsetrið YourParkingSpace.co.uk fólk sem leigir út bílapláss geta fjármagnað sitt næsta frí að verulegu leyti.

Framkvæmdastjóri vefsetursins segir að svo ánægðir séu notendur þessarar útleigu heimreiða og stæða, að þeir séu vart heim komnir úr fríi er þeir byrja skipuleggja ferðalag næsta árs.

Hér er ef til vill komin hugmynd að aukafjáröflun fyrir húseigendur vestast á Reykjanesskaganum.

mbl.is