Fagna haustkomunni hjá Toyota

Haustkomunni verður fagnað hjá Toyota á morgun, laugardag.
Haustkomunni verður fagnað hjá Toyota á morgun, laugardag.

Haustfagnaður Toyota, glæsileg sýning hjá viðurkenndum söluaðilunum í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi, verður haldin á morgun, laugardag, klukkan 12 – 16.

„Á haustfagnaðinum má sjá alla Toyotalínuna og í forgrunni verða nýjar kynslóðir bíla sem komið hafa á þessu ári, Camry Hybrid, RAV4, Corolla, Lexus UX, og Lexus ES.

Auk þess verður kynning í Kauptúni á langtímaleigu á Yaris, Camry Hybrid, Corollu og RAV4 sem er skemmtilegur valkostur fyrir þá sem langar í nýjan bíl,“ segir í tilkynningu frá Toyota.

Þá verður fjölbreytt úrval tvinnbíla (hybrid) á Haustfagnaðinum en notkun allra hybridbíla frá Toyota og Lexus er nú kolefnisjöfnuð í samvinnu við Kolvið.

mbl.is