Nýr 300 hestafla Peugeot 3008

Nýi Peugeot 3008 tengiltvinn borgarjeppinn býður upp á allt að …
Nýi Peugeot 3008 tengiltvinn borgarjeppinn býður upp á allt að 300 hestöfl.

Brimborg hefur sett í forsölu nýjan Peugeot 3008 sparneytinn tengiltvinn borgarjeppa með val um tvær aflrásir. Annars vegar 225 hestafla með framdrifi og hins vegar 300 hestafla með fjórhjóladrifi. Bæði módelin eru með 8 gíra sjálfskiptingu, 5 ára heildarábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

„Peugeot 3008 sló í gegn á Íslandi og nú kemur hann í tengiltvinnútgáfu með veghæð upp á 22 cm og drægi á rafmagninu einu allt að 59 km. Hægt er að fullhlaða rafgeymana á 1:45 klst. Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er aðeins 1,6 til 2,2 lítrar á hundraðið og CO2 losun aðeins frá 33 til 49 grömm á kílómetra skv. WLTP mælingu,“ segir í tilkynningu frá Brimborg.

Sala tengiltvinnjeppa hefur farið vaxandi víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi en Brimborg hefur tryggt ákveðinn fjölda bíla sem eru nú til forsölu í nýjum vefsýningarsal á brimborg.is. Í fyrstu verður Peugeot 3008 SUV PHEV í boði í GT útfærslu hlaðinn staðalbúnaði auk 300 hestafla vélar og fjórhjóladrifs. Hann er knúinn af annars vegar bensínvél og hins vegar tveimur rafmótorum sem skila samanlagt 300 hestöflum. Hægt að nota fjórhjóladrifið þegar ekið er á rafmagninu einu.

„Peugeot 3008 er margverðlaunaður og hefur fengið sérstakt lof fyrir einstaka hönnnun að utan sem innan þar sem nútímaleg i-Cockpit innrétting er í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af tækni þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns,“ segir í tilkynningunni áðurnefndu.

Samkvæmt upplýsingum frá Brimborg kostar Peugeot tengiltvinnbíllinn frá 5.230.000 krónum.

mbl.is