Mercedes-Benz með sölumet í október

Mercedes Benz GLE
Mercedes Benz GLE mbl.is/​Hari

Mercedes-Benz setti sölumet í október en þá seldi þýski lúxusbílaframleiðandinn alls 199.293 nýjar bifreiðar á heimsvísu. Það er tæplega 5% aukning frá október á síðasta ári.

Mercedes-Benz hefur aldrei selt fleiri bíla í októbermánuði í tæplega 130 ára sögu fyrirtækisins. Hefur það selt alls 1.924.536 bifreiðar frá janúar til október á heimsvísu sem er 1% aukning frá síðasta ári.

Nýr fjögurra dyra A-Class Saloon og ný kynslóð af GLC sportjeppanum voru söluhæstu bílarnir og þar á eftir kom C-Class sem seldist einnig mjög vel. Rafsportjeppinn EQC hefur einnig fengið góðar viðtökur en hann kom á markað fyrr á árinu.

Mercedes-Benz hefur náð söluaukningu á þessu ári í flestum mörkuðum samanborið við árið í fyrra. Má þar nefna Þýskaland, Bretland, Spán, Frakkland Pólland, Danmörku, Belgíu, Sviss og Tyrkland og Portúgal. Alls seldust 81.017 Mercedes-Benz bílar í Evrópu í síðasta mánuði sem er

„Við erum afar ánægð með ná sölumeti fyrir október og sömuleiðis með útkomuna á fyrstu 10 mánuði ársins. Þetta hefur verið mikil áskorun að ná þessum árangri á erfiðum tímum í bílageiranum. Við finnum fyrir miklum áhuga frá viðskiptavinum með nýju bílanna okkar sem er afar ánægjulegt,“ segir Britta Seeger, stjórnarmaður hjá Mercedes-Benz í tilkynningu.

mbl.is