Ekki sama hvernig farið er með dældirnar

Jóhannes segir að með nýjum aðferðum sé hægt að laga …
Jóhannes segir að með nýjum aðferðum sé hægt að laga dældir samdægurs, án þess að eiga við lakkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það virðist óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að eiga bíl að þurfa, endrum og sinnum, að lagfæra dældir. Jóhannes Norðfjörð er sérfræðingur í svokölluðum „fínréttingum“ hjá Gæðasprautun og segir hann laghenta geta lagað sumar dældir á eigin spýtur en aðrar dældir kalli á umfangsmeiri viðgerðir með sérhæfðum tækjum.

„Það fer allt eftir skemmdinni hvað dugar, og ekkert sem mælir á móti því að reyna t.d. að laga dæld með sogskál, eða með því að ýta dældinni varlega út innan frá. En oft getur dældin hafa valdið því að komin er teygja í stálið, svo að þegar búið er að rétta skemmdina skýst hún aftur inn við minnsta álag,“ segir Jóhannes og bætir við að alls kyns tilraunir með t.d. hárblásurum og sogskálum geti seint skaðað skelina á bílnum eða lakkið. „Það er hins vegar auðvelt að valda meira tjóni ef reynt er að ýta dældum út með einhverju oddhvössu og getur áhaldið þá skilið eftir sig skemmd.“

Oftast þarf ekki að eiga við lakkið

Hjá Gæðasprautun eru notaðar sérstakar aðferðir til að laga dældir hratt og vel. Aðferðin sem fyrirtækið notar hefur fengið nafnið „fínrétting“ og segir Jóhannes að þessi lausn henti vel fyrir mýkri dældir. „Ef t.d. innkaupakerra rekst utan í bílinn þrykkir hún dæld inn í efnið og er það skemmd sem við getum ekki lagað nema með hefðbundnum leiðum. Sama gildir með dældir þar sem komið hefur brot í lakkið og það er jafnvel farið að flagna af; við getum ekki lagað þess háttar skemmdir án þess að mála. Í flestum öðrum tilvikum henta fínréttingar vel og getur viðskiptavinurinn oftast nær sótt bílinn til okkar eftir hálfan dag.“

Það sem aðskilur fínréttingar frá hefðbundnum bílaréttingum er að notuð eru sérhæfð tæki sem rétta dældir á augabragði. Starfsmenn Gæðasprautunar þurfa yfirleitt að komast að dældinni aftan frá, og stundum verður að koma fyrir styrkingu á bak við dældina þegar hún hefur verið rétt. „Ef t.d. þakið á bílnum hefur dældast verðum við að fella toppinn niður til að komast að með tækjum okkar og þrýsta þakinu aftur upp, auk þess að endurfesta styrkingarslár og kítta á sinn stað svo að þakið verði stíft og slétt og sé ekki á hreyfingu eftir viðgerðina,“ útskýrir Jóhannes. „Í öðrum tilvikum komumst við að dældum t.d. niður með rúðunni, eða í gegnum læsingargötin, og með þar til gerðum ljóslömpum sjáum við af mikilli nákvæmni hvort réttingin hefur tekist fullkomlega.“

Jóhannes bendir á að fínréttingar spari bæði vinnu og efni. „Gamla leiðin var sú að hita skelina með gasloga og svo þrykkja eða hamra burtu dældir. Þurfti þá að sparsla, grunna og mála aftur þann hluta bílsins sem verið var að lagfæra, sem þýddi að viðgerðin tók miklu lengri tíma,“ segir hann og upplýsir að fínréttingar geti kostað frá 15.000 til u.þ.b. 170.000 kr. án vsk., eftir því hve stór skemmdin er. „Með betri tækjum og bættum aðferðum er hægt að stytta viðgerðartímann til muna, draga úr kostnaði og komast hjá því að sprauta hluta bílsins upp á nýtt. Munar ekki síst um að sleppa við sprautunina ef fólk ekur um á bíl með fallegu þriggja laga lakki sem vandasamt er að lagfæra.“ ai@mbl.is

Ekki hundsa litlu sprungurnar

Auk þess að reka fínréttingaverkstæði starfrækir Gæðasprautun hefðbundna réttinga- og bílasprautunarþjónustu. Þar er m.a. hægt að láta bletta í sár eftir steinkast, og segir Jóhannes að fólk þurfi að hafa nánar gætur á þessum agnarsmáu skemmdum. „Stundum þarf að skoða lakkið mjög vandlega til að sjá þessar skemmdir, sem eru jafnvel bara á stærð við nálarauga. Á það við um þessi smáu göt, og allar skemmdir þar sem sprunga myndast í lakkinu, að það þarf að bletta í sárið fyrr en seinna. Annars finnur vatn og salt sér leið þar í gegn og byrjar þá skelin á bílnum að ryðga. Þegar ryð er tekið að myndast verða allar viðgerðir mun flóknari.“

Litlu blettina sem grjótkastið veldur ætti fólk ekki að reyna að laga sjálft. „Það sem margir gera, til að redda sér sjálfir, er að ná í sandpappír og slípa upp staðinn þar sem steinninn gataði lakkið, en sitja þá uppi með miklu stærra sár en ef skemmdin væri löguð af fagmanni með réttu tækjunum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: