Nýr Kia Niro tengiltvinnbíll frumsýndur

Kia Niro tengiltvinnbíllinn.
Kia Niro tengiltvinnbíllinn.

Nýr Kia Niro Plug-in Hybrid verður frumsýndur í Kia húsinu að Krókhálsi 13 nk. laugardag kl. 12-16.

„Hinn nýi Kia Niro er fallega hannaður borgarjepplingur eða crossover. Bíllinn kemur nú með nokkuð  breyttu útliti en straumlínulagaðar, skarpar og nútímalegar formlínur eru áberandi í hönnuninni. Að framan er Niro með ættarmerki Kia sem er tígurtrjónu grillið og fallega hönnuð díóðu framljós. Innanrýmið er vel hannað og rúmgott. Há seta farþega gerir alla umgengi um bílinn mjög þægilega og útsýni úr bílnum er mjög gott. Þægindi og tækni eru í fyrirrúmi í innanrýminu á Niro og nýi tengiltvinnbíllinn er fáanlegur með 10,25" margmiðlunarskjá,“ segir í tilkynningu.

Nýr Kia Niro Plug-in Hybrid er með tengiltvinnvél með rafmótor og bensínvél. Bíllinn dregur  58 km á rafmagninu eingöngu.

Að  sögn Öskju, umboðsaðila kóreska bílsmiðsins, er Niro vinsælasti bíll Kia á Íslandi sé miðað er við sölu til almennings. Kia Niro er fáanlegur sem tengiltvinnbíll, hreinn rafbíll og tvíorkubíll knúinn rafmótor og 1,6 lítra bensínvél.

Bíllinn er vel búinn öllum nýjustu tæknilausnum og er m.a. með akreinavara, íslensku leiðsögukerfi og mörgu fleira. Nýr Kia Niro er með 7 ára verksmiðjuábyrgð eins og allir nýir Kia bílar.

mbl.is