Volvo vinsælasti lúxusbíllinn á Íslandi

Lúxusbílar frá Volvo.
Lúxusbílar frá Volvo.

Volvo var vinsælasti lúxusbíllinn hér á landi á nýliðnu ári, 2019. Var hlutdeild Volvo á einka­bíla­markaði lúxusbíla 35,2%.

Á heildarbílamarkaði lúx­us­bíla bar Volvo höfuð og herðar yfir aðra lúx­us­bíla með 29,2% hlut­deild á ár­inu sem var að líða sem er mesta hlutdeild á einu markaðssvæði á heimsvísu, að sögn Brimborgar, umboðsaæia fyrir Volvo á Íslandi.

Volvo Cars hef­ur verið í mik­illi sókn und­an­far­in ár á lúx­us­bíla­markaði á heimsvísu og hefur slegið sölumet sex ár í röð. Árið 2019 náði Volvo Cars að selja yfir 700.000 bíla í fyrsta sinn í 93 ára sögu sinni eða 705.452 bíla sem er 9,8% aukning frá árinu áður. Jók sænski bílsmiðurinn markaðshlutdeild sína á öllum mörkuðum.

„Vinsældir Volvo á Íslandi er þar eng­in und­an­tekn­ing því hlut­deild Volvo af lúx­us­bíla­markaði hér á landi hefur verið einstök síðustu árin,“ segir í tilkynningu. Vin­sæl­ustu Volvo bíl­arnir eru jepp­arn­ir XC90, XC60 og XC40. 

Lúxusbílamarkaðurinn íslenski 2019.
Lúxusbílamarkaðurinn íslenski 2019.
mbl.is