Jeep og RAM afmælissýning hjá ÍSBAND

Jeep Compass verður til sýnis og á sérstöku afmælistilboði á …
Jeep Compass verður til sýnis og á sérstöku afmælistilboði á sýningu ÍSBAND.

ÍSBAND í Mosfellsbæ, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi, fagnar í janúar þriggja ára afmæli. Mun umboðið fagna þeim tímamótum með glæsilegri afmælisssýningu, í sýningarsal sínum í Þverholti 6 Mosfellsbæ, laugardaginn 25. janúar.

Boðið verður upp á afmælistilboð á Jeep jeppum og RAM pallbílum. Jeep Compass hlaðinn aukabúnaði er á sérstöku afmælistilboði á 5.990.000 kr., en listaverð með aukahlutum á þessum bíl eru 7.424.000 kr. „Alvöru jeppi með alvöru fjórhjóladrif á frábæru verði,“ segir í tilkynningu.

Sýndir verða óbreyttir og breyttir Jeep og RAM pallbifreiðar. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir  breytingarfyrirtæki sem sérhæfa sig í breytingum á Jeep Wrangler og RAM. Allar breytingar á jeppunum eru unnar af þjónustuverkstæði ÍSBAND. Á sýningunni verða Jeep Grand Cherokee með 33” og 35” breytingu og Jeep Wrangler með 35”, 37” og 40” breytingu. RAM pallbílar verða sýndir með 35”, 37” og 40” breytingum.

Sýningin verður opin á milli kl. 12-16 á laugardaginn kemur.

Jeppar á fyrri sýningu hjá ÍSBAND.
Jeppar á fyrri sýningu hjá ÍSBAND. Eggert Jóhannesson
mbl.is