Frumsýnir nýjan og breyttan Juke

Hinn nýi Nissan Juke hefur tekið talsverðum útlitsbreytingum.
Hinn nýi Nissan Juke hefur tekið talsverðum útlitsbreytingum.

BL við Sævarhöfða frumsýnir á morgun, laugardaginn 1. febrúar milli kl. 12 og 16, nýja og breytta kynslóð sportjeppans Nissan Juke.

„Bíllinn hefur tekið spennandi og þróttmiklum útlitsbreytingum þar sem skerpt hefur verið á helstu megineinkennum í útliti jepplingsins sem hafa aflað honum mikilla vinsælda hjá stórum hópi kaupenda,“ segir í tilkynningu.

Breytinganna sér m.a. stað í aukinni áherslu á V-laga framgrillið og dagljósin sem eru eins og framlenging á grillinu þar sem þau fylgja efri brún vélarhlífarinnar. Þá hafa hringlaga aðalljósin fengið skemmtilega breytingu með þriggja arma díóðulýsingu frá miðju ljóssins og til ytri brúna hringlaga luktarinnar sem er eins og áður meðal helstu einkenna Juke.

Nýtt og endurhannað farþegarými
Nýr Juke er stærri en forverinn og rými fyrir ökumann og farþega því meira en áður auk þess sem farþegarýmið hefur verið endurhannað. Fótapláss farþega í aftursætum er um sex cm meira en áður, höfuðpláss er meira og sætisstaða ökumanns og aðgengi hans að stjórnbúnaði hefur einnig verið bætt til að auka þægindi og öryggi í akstri. Þá hefur farangursrýmið aftur í verið aukið um 20% eða í 422 lítra. Einnig hefur geymslupláss fyrir ýmsa smáhluti verið aukið. Þrátt fyrir stærri og rúmbetri Juke er nýi jepplingurinn 23 kg léttari en fráfarandi.

Ný vél og meiri þægindi

Juke er í boði með þriggja strokka eins lítra 117 hestafla bensínvél með forþjöppu og
sjálfskiptingu sem hafa þrjár akstursstillingar, Eco, Standard og Sport. Bíllinn er búinn margvíslegri nýrri tækni á sviði öryggis og þæginda, þar á meðal Nissan ProPILOT með aðstoðarstýringu, eftirliti með blindsvæðum og sjálfvirkri hröðun sem hægir eða eykur hraðann í samræmi við umferðarþunga og stöðvar bílinn ef þörf krefur svo fátt eitt sé nefnt.

Meðal staðalbúnaðar er að öryggiskerfið ber kennsl á gangandi og hjólandi vegfarendur og virkjar neyðarhemlun Juke gerist þess þörf. Juke ber einnig kennsl á hraðamerkingar og veglínur auk þess sem hann fylgist með aðvífandi umferð aftan við bílinn og heldur honum á sinni akrein sé annar bíll á leið fram úr.

Góð afþreying

Juke er einnig búinn afþreyingarkerfinu Nissan Connect infotainment sem innifelur m.a. hið afar öfluga og vandaða Bose Personal Plus hljóðkerfi sem er samhæft Apple CarPlay og Android Auto og getur varpað stjórn farsímans á 8“ miðlægan bílskjáinn. Þá geta eigendur Juke einnig nálgast símaapp til að fylgjast með bílnum, t.d. því hvort hann sé læstur og geta læst eða aflæst bílnum með símanum. Þá er einnig hægt að fylgjast með staðsetningu bílsins í appinu sem getur verið gagnlegt þegar leita þarf að bílnum á bílastæðum landsins.

Val um fjórar útgáfur

Hægt er að velja um fjórar útfærslur Juke, grunnútgáfuna Acenta, sem kostar 3.790 þúsundir króna, auk N-Connecta, Tekna og dýrustu útgáfunnar, N-Design, sem kostar 4.750 þúsundir króna. Á heimasíðu BL má nálgast nánari upplýsingar um fjölbreyttan búnað Juke ásamt
upplýsingum um aukabúnað og úrval aukahluta.

Hinn nýi Nissan Juke hefur tekið talsverðum útlitsbreytingum.
Hinn nýi Nissan Juke hefur tekið talsverðum útlitsbreytingum.
Athafnarými ökumanns í hinum nýja Nissan Juke.
Athafnarými ökumanns í hinum nýja Nissan Juke.
Þægindin eru mikil með svona sætum.
Þægindin eru mikil með svona sætum.
mbl.is