„Skyldi vera mitt pláss á heimilinu“

Kemur skemmtilega út að hafa búð með hreinsiefnum í bílskúrnum …
Kemur skemmtilega út að hafa búð með hreinsiefnum í bílskúrnum og fellur vel að aukabúgrein húsbóndans. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Marga dreymir um að eiga snyrtilegan og fallega innréttaðan bílskúr þar sem ökutæki heimilisins fá sín notið og jafnvel að komið hafi verið upp vinnuaðstöðu til að dytta að bílnum og dunda sér.

Því miður er veruleikinn annar á flestum heimilum og bílskúrinn bæði óhreinn og ósnyrtilegur; afgangsstærð á heimilinu og notaður sem geymsla fyrir stórt og smátt. Í sumum tilvikum er jafnvel búið að úthýsa bílnum því pappakassar, grill, reiðhjól og skíðasett hafa löngu tekið bílskúrinn yfir svo að þar kemst ekkert annað fyrir.

Á næstu mánuðum mun Bílablað Morgunblaðsins skoða nokkra vel heppnaða íslenska bílskúra sem lesendur hafa bent á, og fjalla um þá ástríðu fyrir bílum sem býr þar að baki.

Við byrjum ferðalagið hjá Magnúsi Breiðfjörð Guðmundssyni sem býr að Fannagili 3 á Akureyri. Bílskúrinn á heimilinu er óvenjulegur að því leyti að vera líka vinnustaður Magnúsar og verslun, en hann rekur bílaþvottafyrirtækið Dekurbíla (www.facebook.com/dekurbilar) og hefur haft bílaþvott sem aukavinnu allt frá því hann var táningur.

„Þegar við fluttum frá höfuðborgarsvæðinu til Akureyrar stækkaði bílskúrinn töluvert og ég ákvað það strax og við komum okkur fyrir að þetta skyldi vera mitt pláss á heimilinu,“ segir Magnús og bætir við að það hafi ekki verið erfitt að semja við aðra heimilismeðlimi um að halda bílskúrnum hreinum og fínum. „Konan mín er helsti stuðningsmaður minn og deilir með mér áhuganum á bílum og bílaþrifum, og sammæltumst við um að bílskúrinn yrði ekki notaður sem geymsla. Í staðinn keypti ég lítinn geymslukofa til að hafa úti í garði og er það þar sem við höfum reiðhjólin, grillið og þess háttar hluti.“

Sápur í hillum og flísar á gólfi

Í skúrnum kom Magnús sér upp aðstöðu til að þrífa bíla og fljótlega tóku hreinsivörur að safnast þar upp. „Eigandi verslunarinnar Classic Detail á Bíldshöfða leitaði til mín að fyrra bragði og lagði til að ég tæki hreinsivörurnar hans í sölu og veitti ekki af enda var þá afskaplega takmarkað framboð af bílahreinsivörum á Akureyri, og eins vöntun á faglegri þjónustu sérfræðinga við þá sem leituðu að réttu hreinsivörunum.“

Varð því úr að breyta hluta bílskúrsins í litla verslun þar sem finna má úrval af sápum, bónefnum og hreinsiáhöldum. Það var svo síðasta sumar að Dekurbílar eignuðust annan samstarfsaðila sem er með umboð fyrir bílskúrs-gólfflísar frá Straxgolf.is. „Varð úr að við bættum þessum plastflísum við vöruúrvalið og notuðum tækifærið til að flísaleggja gólfið með góðum árangri,“ segir Magnús, en um er að ræða sterkbyggðar plastplötur sem eru lagðar ólímdar ofan á bílskúrsgólfið. Plöturnar eru til í öllum regnbogans litum og fór Magnús þá leið að setja hvítar flísar á gólfið með rauða útlínu eftir veggjum bílskúrsins og rauðan ferhyrning sem markar hvar bíllinn á að standa. Innst í bílskúrnum er síðan reitur þar sem sextán plötur mynda einfalt mósaík og sýna alla breiddina í lita- og áferðarframboði framleiðandans.

Magnús segir flísarnar hafa gert mikið fyrir bílskúrinn og gefið honum skemmtilega amerískan blæ. Flísarnar hafi þó líka mikið notagildi og tryggi m.a. að væta og slabb sem lekur af bílunum sem hann þrífur safnist ekki upp eða myndi tauma og polla sem ganga þurfi í kringum. Vatnið einfaldlega lekur í gegnum ristarnar á flísunum og fylgir svo vatnshalla gólfsins að næsta niðurfalli. „Þá vernda flísarnar gólfið og þola t.d. vel nagladekk, og koma í veg fyrir að gúmmíið í dekkjunum loði við málninguna á gólfinu og rífi hana upp.“

Búðin lokuð meðan hann þvær bíla

Nóg er að gera hjá Magnúsi, en hann sinnir versluninni og bílaþrifunum í hálfu starfi á móti dagvinnu sinni annars staðar. Verslunin er opin frá 13 til 18 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, og frá 18 til 22 á þriðjudögum og fimmtudögum, en Magnús leggur á það ríka áherslu að þrífa ekki bíla á meðan búðin er opin: „Það kemur einfaldlega til af því að það getur hægt á mér við vinnuna ef viðskiptavinur kemur í heimsókn því ekki er óalengt að um 40 mínútur fari í hverja sölu enda þarf að ræða vandlega hvað það er sem viðskiptavinurinn er að leita að og hvernig á að nota vöruna.“

Þá virðist það fara vel saman að hafa bílaþrif og verslun í sama bílskúrnum: „Þegar rólegast er í búðinni er mest að gera í þrifunum, og öfugt. Salan á bílahreinsunarvörum er mest yfir sumartímann þegar veðrið er þannig að fólk á auðvelt með að þrífa bílana sína sjálft úti á plani, en á veturna eykst eftirspurnin eftir bílaþrifum enda eru ekki allir með aðstöðu innandyra til að gera bílinn fínan.“

Þegar Magnús og frú fluttu í rúmgott hús á Akureyri …
Þegar Magnús og frú fluttu í rúmgott hús á Akureyri var ákveðið að bílskúrinn yrði bara ætlaður bílnum og tilheyrandi, en ekki geymsla.
Magnúsar setti geymsluskúr í garðinn fyrir hjól og aðra lausamuni …
Magnúsar setti geymsluskúr í garðinn fyrir hjól og aðra lausamuni svo bílskúrinn fylltist ekki af hlutum sem eiga þar ekki heima mbl.is/Þorgeir Baldursson
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili.
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili.
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili.
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili. Þorgeir Baldursson
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili.
Í bílskúr Magnúsar á Fannagili.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: