Kia Ceed SW tengiltvinnbíll frumsýndur

Langbakurinn og tvinnbíllinn Kia Ceed Sportswagon verður frumsýndur hjá Öskju …
Langbakurinn og tvinnbíllinn Kia Ceed Sportswagon verður frumsýndur hjá Öskju um helgina.
Bílaumboðið Askja mun frumsýna nýjan Kia Ceed Sportswagon í tengiltvinn útfærslu í Kia húsinu að Krókhálsi á morgun, laugardag, frá klukkan 12 til 16.

Kia Ceed Sportswagon PHEV er nýjasti meðlimurinn í Ceed fjölskyldunni sem hefur fengið mörg eftirsótt hönnunarverðlaun. Hinir meðlimirnir eru XCeed, ProCeed, Ceed og Ceed SW.

Kia Ceed Sportswagon PHEV er með allt að 60 km rafdrægi samkvæmt WLTP staðli og umhverfismilda 1,6 lítra bensínvél og eyðir hann aðeins frá 1,28l/100 km. Tengiltvinnvélin skilar bílnum samtals 141 hestafli og togið er 256 Nm. Bíllinn er með sex þrepa sjálfskiptingu sem er mjúk og þægileg og eykur enn frekar á góða aksturseiginleika bílsins.

„Nýr Kia Ceed Sportswagon PHEV er sportlegur ásýndum. Tveggja þátta grill, LED framljós með „ísmola“ LED dagljósabúnaði og þokuljósum gefa framendanum sterkan svip. Sportleg, lág hliðarlínan er með krómumgjörð um glugga og rennilega þaklínu. Innanrýmið er ríkulegt þar sem nútímaleg tækni er fullkomlega aðlöguð að 8 eða 10,25 tommu snertiskjánum sem býður upp á tengingar við aksturskerfi bílsins sem og afþreyingarkerfi,“ segir í tilkynningu.

Bíllinn er mjög rúmgóður og farangursrýmið er alls 437 lítrar. Verðið á honum er frá 4.290.777 krónum. Kia Ceed Sportswagon PHEV er með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir bílar frá suður-kóreska bílaframleiðandanum. Kia er með breiða línu tengiltvinnbíla og það mun aukast enn frekar með komu Kia Ceed Sportswagon PHEV. Þá er hinn nýi Kia XCeed í tengiltvinn útfærslu einnig væntanlegur til landsins á næstunni en forsala á bílnum hefur staðið yfir síðustu vikur hjá Öskju.
Langbakurinn og tvinnbíllinn Kia Ceed Sportswagon verður frumsýndur hjá Öskju …
Langbakurinn og tvinnbíllinn Kia Ceed Sportswagon verður frumsýndur hjá Öskju um helgina.
mbl.is