Toyota kynnti í dag til sögu ofuraflmikinn Yaris GR með drifi á öllum fjórum hjólum.
Bíllinn er þróaður af keppnisbíladeild japanska bílrisans, Toyota Gazoo Racing. Við það verk var stuðst við reynslu Toyota af þátttöku sinni í heimsmeistaramótunum í ralli.
Á meginlandi Evrópu mun Yaris GR kosta sem svarar fimm milljónum króna, en hann kemur í sölu í nóvember næstkomandi.
Til hjólanna mun forþjöppuð splunkuný 1,6 lítra bensínvél skila allt að 275 hestöflum. Það dugar til að koma bílnum úr kyrrstöðu í hundraðið á 5,5 sekúndum. Allar útgáfur Toyota GR verða með drifi á öllum hjólum. Það ásamt léttum þunga ætti að þýða einstaka akstursánægju.