Kia Telluride heimsbíll ársins

Kia Telluride.
Kia Telluride.

Kia Telluride hefur verið valinn heimsbíll ársins 2020 en verðlaunin voru veitt í Toronto í Kanada í gær.

Kia Telluride er nýr sportjeppi sem framleiddur er sérstaklega fyrir Bandaríkjamarkað. Kia vann tvo flokka í þessu eftirsóknarverða vali en rafbíllinn Kia Soul EV vann flokk borgarbíla.

„Allir hjá Kia eru heiðraðir með þessum verðlaunum. Við unnum ekki ein heldur tvenn verðlaun hjá dómnefndinni í vali á heimsbíl ársins,“ sagði Thomas Schemera yfirmaður vörudeildar hjá Kia Motors Corporation.

„Þetta eru ein eftirsóttustu verðlaunin á heimsvísu í bílabransanum. Þetta er til votts um það að Telluride og Soul EV eru framúrskarandi bílar. Þessi verðlaun bera með sér hversu hæfileikaríkt og duglegt teymið er á heimsvísu og hversu hart allir sækja að því að framleiða eftirsótta gæða bíla sem hafa gott notagildi og ökumenn elska,“ bætti Schemera við.

Þetta er í 15. skipti sem verðlaunin eru veitt í samvinnu við Bílasýninguna í New York en henni hefur nú verið frestað fram í ágúst.

mbl.is