Kórónuveiran hefur rist djúp spor í samfélagsgerðina, og afar margvísleg.
Áhrifa veirunnar gætir með ýmsum hætti og þekkja færustu vísindamenn og spekingar hvorki allar hliðar hennar né smitgetu. Þetta er ekki bara til ills fyrir mannskepnuna heldur örlar á hagfelldari áhrifum líka.
Þannig hefur ítalskt fyrirtæki að nafni Targa Telematics, sem sinnir þjónustu fyrir bílaflota fyrirtækja á Ítalíu, skýrt frá því að þjófnaður og innbrot hafi langleiðina í lagst niður í skugga kórónuveirunnar. Nemi samdrátturinn 85%.
Þykir engin önnur skýring á samdrættinum gild en sú að skúrkarnir óttist veirusmit og haldi sig því heima. agas@mbl.is